Garðar framlengir við ÍA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. desember 2015 13:00 Garðar Gunnlaugsson ásamt Magnúsi Guðmundssyni formanni KFÍA og Jóni Þór Haukssyni aðstoðarþjálfara meistaraflokks karla. Mynd/ÍA
Garðar Gunnlaugsson, þriðji markahæsti leikmaður Pepsi-deildar karla í fótbolta í sumar, verður áfram í herbúðum Skagamanna. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu ÍA. Garðar var með samning út næsta tímabil en nýr samningur gildir út keppnistímabilið 2017. Garðar skoraði 9 mörk í 17 leikjum í Pepsi-deildinni 2015 og fékk bronsskóinn. Skagamaðurinn Garðar kom þar með í veg fyrir að erlendir leikmenn fengu í fyrsta sinn gull, silfur og bronsskóinn á sama tímabili í efstu deild karla á Íslandi. Garðar var sérstaklega mikilvægur ÍA liðinu í útileikjunum en hann skoraði 6 af 9 mörkum sínum í Pepsi-deildinni 2015 á útivelli en enginn annar leikmaður úrvalsdeildar karla skoraði fleiri mörk á útivöllum sumarið 2015. Garðar skoraði þar með 43 prósent marka Skagaliðsins utan Akraness (6 af 14) og Garðar var með mark í fimm af sex útileikjum þar sem Skagaliðið náði í stig en þar á meðal var sigurmark á Leiknisvelli og mörk sem tryggðu ÍA jafntefli í Garðabænum og í Víkinni. „Garðar er mikilvægur hlekkur í liðinu og ég er gríðarlega ánægður með að búið sé að tryggja krafta hans næstu tvö árin," sagði Gunnlaugur Jónsson, þjálfari meistaraflokks ÍA, í viðtali á heimasíðunni. Garðar er 32 ára framherji sem hefur skorað 41 mark í 116 leikjum í úrvalsdeild karla. Hann hefur skorað 27 af þessum úrvalsdeildarmörkum sínum fyrir Skagamenn og gæti leikið sinn hundraðasta úrvalsdeildarleik fyrir ÍA á næstu leiktíð. Garðar er hefur spilað 89 leiki fyrir ÍA í efstu deild.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Liðsfélagi Sveindísar opnar sig: Skammast mín og er skíthrædd Fótbolti „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Handbolti „Ég var mjög svekkt og reið yfir því sem hún gerði“ Sport Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Fótbolti Liverpool-krísan stækkar og stækkar eftir stórtap á Anfield Fótbolti Sturlað afrek Viktors: „Okkar útgáfa af Woltemade“ Fótbolti Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Íslenski boltinn „Förum ekki fram úr okkur“ Enski boltinn Hefur ekki gerst hjá Liverpool síðan 1953 Enski boltinn Sjáðu mörkin: Viktor tryllti Parken, ferna Mbappé, sigur Arsenal og tap Liverpool Fótbolti Fleiri fréttir Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Sjá meira