Starfsmanni hjá lögreglu vikið frá störfum sínum vegna gruns um að leka upplýsingum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. desember 2015 10:45 Ástæða þess að starfsmanninum var vikið frá störfum sínum er vegna þráláts orðróms þess efnis að starfsmaðurinn hafi lekið upplýsingum um málefni er voru til skoðunar hjá lögreglu. Vísir/GVA
Starfsmanni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var vikið frá störfum sínum á árinu þar sem grunur lék á að hann læki upplýsingum. Þetta herma heimildir fréttastofu 365 en umræddur starfsmaður hjá lögreglu hafði verið í aðstöðu til þess að hafa meðal annars áhrif á rannsóknir stórra fíkniefnamála. Heimildirnar herma að umræddum starfsmanni lögreglu hafi í framhaldinu verið boðið að færa sig til í starfi innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meðan mál hans væru til skoðunar. Færði hann sig í kjölfarið um set og hóf störf á annarri deild. Ástæða þess að honum var vikið frá störfum sínum, með eða án samþykkis, er vegna þráláts orðróms þess efnis að starfsmaðurinn hafi lekið upplýsingum um málefni er voru til skoðunar hjá lögreglu. Upplýsingarnar, sem starfsmaðurinn hafði aðgang að gátu meðal annars haft áhrif á stór fíkniefnamál. Ekki hefur tekist að fá staðfest hverslags upplýsingar það voru eða hvort einhver tiltekin sakamál séu til skoðunar í þessum efnum.Lagt var hald á rúmlega 200 þúsund e-töflur í húsbíl sem kom til landsins með Norrænu í september.Mynd úr safni lögregluViðkvæmar upplýsingar Við rannsóknir lögreglu eru upplýsingar af ýmsum toga sem miklu máli skiptir að leki ekki út. Upplýsingarnar geta nýst aðilum sem eru til rannsóknar. Lögregla beitir ýmsum úrræðum við rannsóknir sem mikilvægt er að séu leynilegar. Má þar nefna hlustanir, eftirfararbúnað, sérstakt eftirlit með fólki og tálbeituaðgerðir eins og þá sem Vísir hefur fjallað um undanfarnar vikur. Þeir brotahópar eða aðilar sem til rannsóknar eru geta haft mikinn hag af því að vera upplýstir um aðgerðir lögreglu, hvort sem aðgerðirnar beinast gegn þeim sjálfum eða samkeppnisaðilum þeirra. Hvatinn getur verið ýmis, en líklega mestur að komast upp með skipulögð brot. Vísir hefur fjallað um verðmæti þeirra fíkniefna sem haldlögð hafa verið á undanförnum mánuðum. Verðmætin hlaupa á mörg hundrað milljónum króna og leynist það því engum hve dýrmætt væri fyrir skipuleggjendur slíks máls að hafa innsýn í eða upplýsingar um eftirlit löggæslustofnana.Aldís Hilmarsdóttir og Friðrik Smári Björgvinsson.VísirYfirmenn segja engan grun um spillingu við Hótel Frón Í umfjöllun Vísis um tálbeituaðgerðina sem fór út um þúfur við Hótel Frón síðastliðna páska hefur Aldís Hilmarsdóttir, yfirmaður fíkniefnadeildar, blásið á kenningar fjölmargra lesenda Vísis þess efnis að tálbeituaðgerðin hefði klúðrast vegna spillingar í röðum lögreglu. „Það er ekki grunur um að eitthvað slæmt hafi átt sér stað,“ sagði Aldís. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu sem bar ábyrgð á aðgerðum lögreglu við Hótel Frón ásamt Aldísi, tók í sama streng. Hann sagði að tæknilegir örðugleikar í fjarskiptakerfi lögreglu hafi átt þar hlut í máli og sagði engan grun um spillingu.Vilja ekki tjá sig um málið Aldís og Friðrik vildu hvorug tjá sig um málið nú í morgun þegar eftir því var leitað og vísuðu á lögreglustjórann Sigríði Björk Guðjónsdóttur. Sigríður var vant við látin þegar blaðamaður náði á hana en ætlaði að vera í sambandi síðar í dag.
Leki og spilling í lögreglu Tengdar fréttir Fíkniefni upp á milljarð króna: Tólf ára fangelsisdómur virðist óumflýjanlegur Hollenskt par flutti til landsins fíkniefni að virði tæplega milljarðs. Dómafordæmi gera að verkum að miklar líkur eru á að þau hljóti hámarksrefsingu. 11. desember 2015 16:15 Yfirmaður segir fjarskiptavandamál hafa orðið til þess að sendisveinn var handtekinn "Það er ekki hægt að flokka þetta sem mistök. Aðstæður breyttust skyndilega,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 7. desember 2015 09:30 Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Nóg sé komið af Trump Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Fíkniefni upp á milljarð króna: Tólf ára fangelsisdómur virðist óumflýjanlegur Hollenskt par flutti til landsins fíkniefni að virði tæplega milljarðs. Dómafordæmi gera að verkum að miklar líkur eru á að þau hljóti hámarksrefsingu. 11. desember 2015 16:15
Yfirmaður segir fjarskiptavandamál hafa orðið til þess að sendisveinn var handtekinn "Það er ekki hægt að flokka þetta sem mistök. Aðstæður breyttust skyndilega,“ segir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 7. desember 2015 09:30