Emil og félagar úr leik Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2015 20:23 Emil í leiknum í kvöld. vísir/epa
Verona er úr leik í ítölsku bikarkeppninni eftir 3-0 tap fyrir Napoli í 16-liða úrslitunum í kvöld. Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Verona sem hefur átt afar erfitt tímabil. Liðið er aðeins með sjö stig á botni ítölsku úrvalsdeildarinnar, níu stigum frá öruggu sæti, og er nú dottið úr leik í bikarkeppninni. Omar El Kaddouri kom Napoli yfir strax á 4. mínútu leiksins og átta mínútum síðar var munurinn orðinn tvö mörk eftir að Belginn Dries Mertens skoraði. Staðan var 2-0 í hálfleik og allt fram á 75. mínútu þegar varamaðurinn José Callejón skoraði þriðja mark Napoli og innsiglaði sigurinn. Napoli mætir Inter í 8-liða úrslitunum. Fyrr í dag fóru fram tveir leikir í 16-liða úrslitunum. B-deildarlið Spezia gerði sér lítið fyrir og sló út stórlið Roma eftir vítaspyrnukeppni. Rómverjar tefldu fram mjög sterku liði en tókst þrátt fyrir það ekki að skora í venjulegum leiktíma né framlengingu. Því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppninni þar sem taugar Spezia-manna reyndust sterkari. Þeir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Bosníumennirnir í liði Roma, Miralem Pjanic og Edin Dzeko, klikkuðu á sínum spyrnum. Lokatölur 2-4, Spezia í vil eftir vítakeppni. Þá gerði Carpi, sem er í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar, sér lítið fyrir og vann Fiorentina, liðið í 2. sæti. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum en það gerði Antonio Di Gaudio á 76. mínútu.
Ítalski boltinn Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Sjá meira