Þúsund hestafla etanól Benz Finnur Thorlacius skrifar 11. nóvember 2015 10:22 Mercedes Benz CL 600 með 1.000 hestöfl undir húddinu. worldcarfans
Breytingafyrirtækið Speedriven hefur farið höndum um þennan Mercedes Benz CL 600 og gert hann að einum öflugasta götuhæfa Benz sem til er, en hann er 1.000 hestöfl. Það er tvöföld hestaflatala þessa bíls eins og hann kom út úr verksmiðjum Mercedes Benz árið 2003. Bíllinn er með 12 strokka og 5,5 lítra vél með tveimur forþjöppum, en Speedriven setti í bílinn tvær miklu stærri Garrett forþjöppur og keflablásara, sem og nýtt pústkerfi og loftinntak, en ljóst er að með allt þetta afl gleypir hann ógnarmagn lofts. Þessar breytingar voru nægar til að tvöfalda hestaflatöluna og svona búinn fer hann kvartmíluna á minna en 11 sekúndum. Speedriven þurfti reyndar að búa til nýjan hugbúnað vegna þeirra breytinga sem gerðar voru í vélarhúsi bílsins. Ekki er ljóst hvað hann er snöggur uppí hundraðið, en það er miklu minna en þær 4,7 sekúndur sem frumgerð bílsins er gefinn upp fyrir, líklega ekki mikið meira en 3 sekúndur. Til þess að ná fram þessari háu hestaflatölu er bíllinn látinn brenna etanóli, en hann er einnig fær um að brenna hefðbundnu bensíni.
Mest lesið Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Innlent Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Innlent Kvöddu Davíð hinsta sinni Innlent Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Innlent