Tvö hundraðasti leikur Brynjars í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. nóvember 2015 13:00 Brynjar Þór Björnsson. Vísir/Stefán
Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði KR, spilar tímamótaleik í kvöld þegar KR-ingar taka á móti Snæfelli í sjöttu umferð Domino´s deildar karla í körfubolta. Leikurinn í kvöld verður tvö hundraðasti úrvalsdeildarleikur Brynjars fyrir KR en hann hefur alla líð spilað með Vesturbæjarliðinu fyrir utan eitt ár í atvinnumennsku í Svíþjóð. Brynjar mætir Inga Þór Steinþórssyni, þjálfara Snæfells, í þessum tímamótaleik sínum en Ingi Þór þjálfaði Brynjar í yngri flokkum KR og þekkir hann því betur en flestir. Brynjar verður þriðji KR-ingurinn til að spila tvö hundruð úrvalsdeildarleiki fyrir KR en hinir eru Guðni Ólafur Guðnason og Lárus Þórarinn Árnason. Brynjar hefur skorað 2572 stig í þessum 199 leikjum eða 12,9 stig að meðaltali í leik. Brynjar er með 13,2 stig að meðaltali í fyrstu fimm umferðunum á þessu tímabili. Hér er bara að vera tala um deildarleiki en ekki leiki í úrslitakeppni. Brynjar hefur að auki spilað 82 leiki fyrir KR í úrslitakeppni og hefur því þegar spilað 281 leik fyrir KR á Íslandsmóti og ætti því að geta ná því að spila þrjú hundraðasta leikinn fyrir KR í vetur. Brynjar varð Íslandsmeistari í fimmta sinn síðasta vor og í annað skiptið sem fyrirliði KR-liðsins. Hann hefur einnig fjórum sinnum orðið deildarmeistari með KR-liðinu. Leikur KR og Snæfells hefst klukkan 19.15 og fer fram í DHL-höll þeirra KR-inga. Hann er einn af fjórum leikjum kvöldsins en umferðin klárast síðan á morgun. Öllum leikjunum verður síðan gerð skil í Körfuboltakvöldinu klukkan 22.00 á föstudagskvöldið.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira