Nýr Volkswagen Caddy kynntur til leiks Finnur Thorlacius skrifar 12. nóvember 2015 12:38 Volkswagen Caddy sem fjölskyldubíll. Volkswagen
Fjórða kynslóð Volkswagen Caddy er komin á markað og er glæsileg sem aldrei fyrr. Af því tilefni verður HEKLA með frumsýningu á þessum ástsæla atvinnubíl sem hefur verið sá vinsælasti á Íslandi um árabil. Vinsældir Volkswagen Caddy eru engin tilviljun því hann sameinar hina vel þekktu eiginleika Volkswagen sem ná til áreiðanleika, öryggis og framúrskarandi hönnunar. Þessir eiginleikar Volkswagen Caddy koma sér ekki aðeins vel fyrir fyrirtæki heldur líka fjölskyldur því nú fæst hann einnig í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslum. Um er að ræða einstaklega þægilegan fjölnotabíl sem er sniðinn fyrir athafnasamt fjölskyldufólk. „Volkswagen Caddy er bíll sem býður upp á fjölmarga notkunarmöguleika og við erum stolt af því að geta boðið hann í ýmsum útfærslum. Auk hefðbundins sendilbíls kemur nýja kynslóðin einnig í fimm og sjö manna fjölskylduútfærslu með rennihurðum á báðum hliðum. Skottplássið fellur í kramið hjá þeim sem þurfa aukapláss fyrir gæludýrin, golfkylfurnar eða bara hvað sem er því sá fimm manna er með 750 lítra farangursrými og sá sjö manna með 530 lítra farangursrými.“ segir Ívar Þór Sigþórsson, sölustjóri Volkswagen atvinnubíla. Fjórða kynslóðin er mikið uppfærð og býður upp á enn meiri staðalbúnað, aukið öryggi, öflugri vélar og mikið úrval af aðstoðarkerfum fyrir ökumann. Bíllinn kemur í tveimur lengdum, hefðbundinni og lengri gerð (Maxi) og nú fæst hann einnig með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi og aksturseiginleika hans. Volkswagen Caddy er í boði með stuttu eða löngu hjólhafi, beinskiptur eða sjálfskiptur, framhjóladrifinn eða fjórhjóladrifinn. Hann er þægilegur í allri borgarumferð og er hægt að fá hann með hagkvæmum dísil-, bensín- og metanvélum frá framleiðanda. Svo kemur verðið líka skemmtilega á óvart en nýr Volkswagen Caddy kostar frá: 2.760.000 krónum. Hekla býður áhugasömum að kynna sér Volkswagen Caddy næstkomandi laugardag, 14 nóvember, milli kl. 12.00 og 16.00 í sýningarsal Volkswagen atvinnubíla við Laugaveg 170-174.Caddy sem sendibíll.Volkswagen Caddy getur tekið heilt 7 manna knattspyrnulið í sæti.
Mest lesið RÚV grafi undan tilvist sinni með nýrri auglýsingu Innlent Selenskí fer aftur til Washington en í þetta sinn með Evrópu sér við hlið Erlent Hinn grunaði var leiðbeinandi barna í tæplega tvö ár Innlent Ekkert bann við opnum kvíum en „skussinn borgi brúsann“ Innlent Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Ísraelsmenn handteknir fyrir að mótmæla stríðinu Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Hundrað þúsund ferðamenn heimsóttu Jökulsárlón í júlí Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent