
Sjá einnig: Fjölskyldan fékk synjun um hæli
Útlendingastofnun synjaði beiðni fjölskyldunnar um hæli á föstudag. Fréttablaðið fjallaði um málefni fjölskyldunnar í september síðastliðnum þegar greint var frá því að systkinin Laura, Janie og Perit Telati fengju ekki að ganga í skóla hér á landi. Þau komu fyrst til Íslands í sumar.
Greinilegt að þjóðinni blöskrar
„Það verður að viðurkennast að maður getur ekki barist fyrir öðrum en þeim sem maður veit af. Fréttablaðið vakti athygli á þessari fjölskyldu og aðrir fjölmiðlar. Þá blöskraði mér. En auðvitað ætlast ég til þess að aðrar fjölskyldur í svipaðri stöðu fái jafn mannúðlega meðferð og að ég vona að verði nú ofan á að þessi fjölskylda fái,“ svarar Illugi spurður um hvers vegna söfnunin sé bundin við Teleti fjölskylduna.

Sjá einnig: Útlendingastofnun telur ekki ástæðu til að endurskoða brottvísanirnar
Illugi bjóst ekki við þeim miklu viðbrögðum sem söfnunin fékk. „Ég er alveg dolfallinn yfir þessu raunar. En þetta sýnir bara að fólki blöskrar og að það þýðir ekkert að tala um að við vijum fara að veita flóttamönnum viðtöku en reka svo úr landi fólk sem er komið hingað. Fólk sem vill búa hér og börnin komin í skóla eftir mikið stapp. Það er glórulaust að ætla að fara að vísa þeim úr landi.“
Telati táknmynd fyrir fleiri
Hann segist vart muna eftir söfnunum sem hafa gengið jafn hratt og vel fyrir sig. „Þetta er algjörlega næstum því fáránlega góður árangur. Hann sýnir að fólki hefur blöskrað að það skuli eiga að vísa þessu ágæta fólki úr landi.“
Eins og fyrr segir er Telati-fjölskyldan táknmynd fyrir fleiri fjölskyldur og flóttamenn í sömu sporum. „Ég vil endilega að fólk fái að setjast hér að en ég vona líka að aðrir í svipaðri stöðu sem eru komnir hingað og vilji vera hér fái það. Okkur vantar gott fólk sem vill vera hér á landi.“
Söfnunin stendur til miðnættis í kvöld og hvetur Illugi sem flesta til þess að skrifa undir. Hann hyggst arka niður í Útlendingastofnun klukkan tíu í fyrramálið og afhenda listann. Telati-fjölskyldan áfrýjaði ákvörðun Útlendingastofnunar en ef synjunin verður staðfest verða þau að yfirgefa Íslands samstundis. Allt að tvo mánuði getur tekið að fá niðurstöðu.
Undirskriftasöfnunin fer fram hér.