Sér eftir því að hafa farið til Chelsea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2015 09:00 Pedro og Ayoze Perez. Vísir/Getty
Pedro yfirgaf Barcelona í haust og vildi frekar semja við Chelsea heldur en Manchester United. Nú sér kappinn eftir öllu saman enda hefur tími hans hjá Chelsea breyst í hálfgerða martröð. Spænska blaðið Fichajes hefur eftir vinum hans að spænski landsliðsmaðurinn vildi helst snúa aftur til Barcelona og að hann sé fullur eftirsjá að hafa komið til Chelsea. Daily Express segir frá þessu í dag. Það leit út fyrir að Pedro væri að fara til Manchester United en hann hætti við á síðustu stundu og fór frekar til Jose Mourinho á Stamford Bridge. Pedro byrjaði mjög vel hjá Chelsea og var bæði með mark og stoðsendingu í fyrsta leik á móti West Brom sem Chelsea liðið vann 3-2. Pedro hefur hinsvegar ekki skorað síðan í sex deildarleikjum og hann var ekki í hópnum á móti West Ham um helgina. Ekki hefur gengið mikið hjá Chelsea-liðinu sem er aðeins í fimmtánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Pedro á meðal annars að hafa sagt vini sínum og liðsfélaga Cesc Fabregas að hann óskaði þess í dag að hafa aldrei komið til Chelsea. Pedro sem er 28 ára gamall var mikið á bekknum hjá Barcelona enda að keppa um stöður við menn eins og Lionel Messi, Neymar og Luis Suarez og sóttist þess vegna eftir sölu. Nú lítur varamannabekkurinn hjá Barcelona hinsvegar mikið betur út ef marka má heimildir Fichajes.Pedro á kveðju-blaðamannafundi sínum í Barcelona.Vísir/Getty
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sjá meira