Rússneskur dómarasextett í Dalnum á laugardaginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. október 2015 09:15 Aleksei Eskov. Vísir/EPA
Rússneskir dómarar munu dæma leik Íslands og Lettlands á Laugardalsvellinum á laugardaginn en þetta er síðasti heimaleikur íslenska landsliðsins í undankeppni EM 2016. Aleksei Eskov er aðaldómari leiksins en alls munu samtals sex dómarar koma að því að dæma leikinn þar sem sprotadómarar eru einnig í dómarateyminu. KSÍ segir frá þessu á heimasíðu sinni í dag. Eskov. sem er 37 ára gamall, hefur verið alþjóðlegur dómari frá árinu 2011. Áður en hann fór í dómgæsluna þá var hann leikmaður og lék allan sinn feril í Rússlandi. Aleksei Eskov hefur dæmt einn leik áður í riðli Íslands en hann var með flautuna í leik Tyrklands og Kasakstan sem fór fram í nóvember 2014. Tyrkland vann leikinn 3-1 en bæði liðin fengu víti í leiknum. Eskov gaf fjögur gul spjöld í leiknum en ekkert rautt. Tyrkir fengu þrjú gul en Kasakar eitt. Kasakar minnkuðu muninn í 3-1 úr vítaspyrnu á 87. mínútu en fyrsta mark Tyrkja í leiknum kom einnig úr víti. Aleksei Eskov hefur fengið þrjá leiki í Evrópudeildinni í vetur, tvo í undankeppninni og svo leik Marseille og Liberec í riðlakeppninni. Eskov hefur bara dæmt í forkeppni Meistaradeildarinnar en hefur enn ekki fengið leik í riðlakeppninni.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Chelsea að ná í Emiliano Martínez Enski boltinn Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Elías og félagar flugu áfram Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Sjá meira