Lífið samstarf

Fatlað fólk á sama rétt og aðrir

KYNNING: Öryrkjabandalag Íslands skorar þessa dagana á íslensk stjórnvöld að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, eigi síðar en á haustþingi 2015.

Samningurinn er leiðarvísir að því hvernig tryggja skal fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri til jafns við aðra í lífinu og gera því þannig kleift að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. 151 land hefur fullgilt samninginn. Einungis fjögur Evrópulönd eiga eftir að fullgilda hann, Finnland, Írland, Holland og Ísland.

Lesendur er hvattir til að skrifa undir áskorun til stjórnvalda á síðunni obi.is/askorun.

Öryrkjabandalagið hefur látið gera myndbönd til að styðja við áskorunina og fjallar myndbandið hér að ofan um aðgengi.

Aðgengi

Í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólk segir:

Fatlað fólk á sama rétt og aðrir, til fjölskyldulífs og virkrari þátttöku í samfélagi sem tryggir því aðgengi að byggingum, upplýsingum, samgöngum, menningarlífi, tómstunda- og íþróttastarfi .

Aðgengi snýst almennt um þátttöku fatlaðs fólks í samfélaginu, ekki bara efnislegtu aðgengi heldur líka aðgengi að fjölskyldulífi, menntun og atvinnu. Skert aðgengi hefur þannig ekki bara áhrif á fatlað fólk heldur alla í þeirra nærumhverfi eins og ættingja, vini og kunningja.


Tengdar fréttir

Fatlað fólk á rétt á upplýsingum að eigin vali

KYNNING: Öryrkjabandalag Íslands skorar þessa dagana á íslensk stjórnvöld að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, eigi síðar en á haustþingi 2015.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.