Arnar um Bjarna Guðjónsson: Stjórn KR verður líka að taka smá ábyrgð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 21. september 2015 12:53
Gengi KR í Pepsi-deildinni hefur ekki verið upp á marga fiska á undanförnum vikum en í gær tapaði liðið 0-3 fyrir Stjörnunni á heimavelli. Eftir sigurinn góða á FH í 12. umferð hefur KR aðeins fengið 10 stig í átta deildarleikjum og nú er svo komið að Evrópusætið er í hættu en aðeins þremur stigum munar á KR-ingum og Val og Fjölni sem eru í 4. og 5. sæti. Staða Bjarna Guðjónssonar, þjálfara KR, var meðal þess sem var til umræðu í Pepsi-mörkunum í gær. „Fyrir tímabilið þegar stjórn KR réði Bjarna vissu þeir að þeir voru að ráða reynslulausan þjálfara. Hann átti bara eitt tímabil að baki með Fram,“ sagði Arnar Gunnlaugsson sem var gestur Harðar Magnússonar ásamt Hjörvari Hafliðasyni. „Og þá verður þú að taka því góða með því slæma. Sumar ákvarðanir hjá Bjarna í sumar hafa verið mjög góðar, sérstaklega í FH-leiknum, en eftir hann hefur hann stundum brugðist. En þá þarf stjórn KR líka að taka smá ábyrgð á ráðningunni og ekki bara henda honum út í hafsauga. „Þeir þurfa að gefa honum meiri séns því sumar ákvarðanir í sumar hafa verið reynsluleysi að kenna,“ bætti Arnar við en Hjörvar segir að Bjarni sé ekki öruggur með starf sitt. „Bjarni talar eins og hann verði áfram en ég held að hann þurfi að ná í úrslit í þessum tveimur leikjum. Ef hann tapar þeim báðum er ég ekki alveg viss hvað verður,“ sagði Hjörvar.Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Gagnrýnir lýsingu Einars Arnar: „Tuðandi nánast allan leikinn“ Handbolti Bjarka sagt að koma ekki aftur til Ungverjalands Handbolti Elvar úr leik á EM Handbolti Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Handbolti „Mér líður bara ömurlega“ Handbolti Ræða Alfreðs gerði útslagið: Leikmenn stóðu upp og klöppuðu Handbolti Svona meiddist Elvar Handbolti „Beint flug til Köben og nokkrir veikindadagar“ Handbolti „Langt frá því að vera faglegt“ hjá dómaraparinu frá Norður-Makedóníu Handbolti Ungverjar stoltir eftir slag við „þá bestu í heimi“ Handbolti Fleiri fréttir Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Birta eltir ástina og semur við Genoa Júlíus Mar seldur til Kristiansund Bæði Blikaliðin fá sánuklefa fyrir komandi tímabil Feginn að vera fluttur heim úr fátækrahverfinu í Kína Svekktur að fá ekki leyfi til að taka við ÍBV Sjá meira