Rúnar Kristinsson, fyrrverandi þjálfari KR, er þjálfari Lilleström og vill fá Glenn til sín, en heimildir Vísis herma að samningaviðræður milli félagsins og Glenns séu vel á veg komnar.
„Ég vissi að Lilleström vildi fá hann í sumar en ÍBV var ekki tilbúið að láta hann fara fyrir ekki neitt. Þess vegna kom hann til okkar. Það kæmi mér ekkert á óvart að Lilleström sé að reyna við hann aftur núna. Ég heyrði af þessu síðast í gær, en ég get ekkert staðfest,“ segir Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks, við Vísi.
„Glenn lagði mikla áherslu á að hann væri laus eftir tímabilið þegar hann samdi við okkur og við vorum ekki í neinni stöðu til að vera með neinar kröfur. Markmið hans var að komast út og þannig kemur mér ekkert á óvart ef eitthvað er að gerast þeirra á milli.“

Glenn hóf tímabilið með ÍBV og skoraði fjögur mörk í ellefu leikjum áður en hann skipti óvænt til Breiðabliks á lokadegi félagaskipta. Trínidadinn hefur slegið í gegn í Kópavoginum og skorað átta mörk í sjö leikjum.
Rúnar Kristinsson er í 9. sæti af 16 liðum í norsku úrvalsdeildinni þegar sex umferðir eru eftir af deildinni, en með liðinu spila tveir Blikar; Finnur Orri Margeirsson og Árni Vilhjálmsson.

Fari Glenn frá Breiðabliki, eins og allt stefnir í, þarf Arnar Grétarsson að styrkja hjá sér framlínuna fyrir næsta tímabil. „Við erum að skoða okkar mál,“ segir hann.
Gary Martin, framherji KR, er leikmaður sem Breiðablik reyndi að fá í glugganum en tókst ekki að fá. Martin er virkilega ósáttur með stöðu sína í Vesturbænum og gæti verið á leið frá KR eftir tímabilið.
„Við ætlum bara að skoða alla þessa gaura sem eru lausir. Framherjastaðan er klárlega sú staða sem við þurfum að styrkja,“ segir Arnar.
„Gary Martin er einn af þeim leikmönnum sem koma til greina. Hann er leikmaður sem hefur sannað sig hér á Íslandi. Við erum ekkert búnir að taka afstöðu til þessa mál, en hann er á listanum yfir framherja sem við ætlum að skoða eftir tímabilið,“ segir Arnar Grétarsson.