Í apríl 2013 sagðist hann vera fæddur árið 1935, sem er þó nær sannleikanum en hann er fæddur árið 1933.
Lagerfeld lærði teikningu og sögu, áður en hann var ráðinn sem aðstoðarmaður Pierre Balmain árið 1955, eftir að hafa unnið hönnunarkeppni þar sem verkefnið var að hanna kápur.

Lagerfeld fór til Fendi árið eftir og árið 1983 var hann ráðinn til Chanel, en hann hannar fyrir bæði merkin enn þann dag í dag.
Lagerfeld hefur oft á tíðum valdið fjaðrafoki. Árið 1993 stormaði Anna Wintour ritstjóri Ameríska VNýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.ogue út af sýningu hjá honum á tískuvikunni í Mílano. Hann hafði ráðið fatafellur og klámmyndaleikkonu til að sýna og fór það fyrir brjósið á Wintour.
Hann tjáði sig einnig um Pippu Middleton, systur Kate Middleton og sagði að eins og honum líkaði vel við hertogaynjuna þá líkaði honum ekki við andlit systur hennar og hún ætti að hans mati einungis að sýna á sér bakið í fjölmiðlum.

Glamour óskar Karl innilega til hamingju með 82 árin...eða ættum við að segja 77 árin? Hér fyrir neðan má sjá nokkrar skemmtilegar myndir frá ferli hönnuðarins.




Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.