Pavel: Ég er jóker hérna 9. september 2015 15:30 Pavel í leiknum gegn Italíu. Vísir/Valli
Pavel Ermolinskij spilar margar stöður fyrir íslenska körfuboltalandsliðið á Evrópumótinu í Berlín en þjálfarateymið reynir oft að stilla honum upp á óvenjulegum stöðum til að reyna nýta sér hæð og fjölhæfni hans betur. „Ég er bara jóker hérna og þeir nota mig í hvað sem er. Ég var að fylla á brúsana í hálfleik," sagði Pavel Ermolinskij sposkur á svip eftir Serbíuleikinn í gær. „Við erum bara þannig lið," sagði Pavel sem spilaði um tíma sem miðherji í leiknum á móti Serbíu á meðan Hlynur Bæringsson, aðalmiðherji liðsins, fékk hvíld. Íslenska liðið verður að prófa nýja og óvenjulega hluti til þess að rugla þessa stóru og sterku mótherja aðeins í ríminu. Þarna var Pavel inná með hálfgerðu bakvarðarliði. „Þetta er bara villimennska í raun og veru. Það er það sem við verðum að gera, að reyna að vera eins óþægilegir og við getum fyrir þá. Þessi lið eru vön að spila ákveðin stíl og ákveðin bolta. Við erum að bjóða upp á eitthvað allt annað," sagði Pavel. „Sum lið ná að aðlagast okkur eins og Serbarnir gerðu en önnur lið eiga erfitt með það. Við verðum bara að halda okkur við það sem við gerum vel," sagði Pavel en íslenska liðið spilar sinn fjórða leik í dag og þá verða Spánverjar mótherjarnir. „Það verður eitthvað svipað upp á teningnum á morgun. Þeir eru mjög agaðir og mjög vel spilandi. Þetta eru auðvitað allt frábærir leikmenn og ofan á það," sagði Pavel. „Eins og við vissum fyrir mót þá þurfum við að hitta á leik þar sem að það er allt ofan í og á sama tíma verðum við að vera klikkaðir í vörnnni og gera þeim þetta rosalega erfitt fyrir. Þetta verður að vera þannig og við vissum það fyrir mótið," sagði Pavel.
EM 2015 í Berlín Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Dagskráin: Generalprufa enska landsliðsins fyrir HM Sport „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Sjá meira