Fyrstu forsíðuna prýðir enginn annar enn eitt vinsælasta karlmódel heims um þessar mundir, hinn sextán ára gamli Lucky Blue Smith.
Hann var uppgötvaður tólf ára gamall og hefur síðan þá setið fyrir í auglýsingum og gengið tískupallana fyrir Tom Ford, Fendi, Jeremy Scott, Etro og Bottega Veneta og setið fyrir á forsíðum L’Officiel Hommes og Harper’s Bazaar.
Hann hefur vakið sérstaka athygli eftir að hann aflitaði hárið á sér, en það gerði hann til þess að gera ímynd sína harðari og meira töff.
good morning / I slept on my lips weird now they are a bit big
A photo posted by Lucky Blue (@luckybsmith) on Aug 17, 2015 at 11:54am PDT

Það verður gaman að fylgjast með þessum unga upprennandi strák í framtíðinni.
Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.