Ólafur Jóhannesson: Vorum tilbúnir að berjast á móti þeim Ingvi Þór Sæmundsson á Leiknisvelli skrifar 20. júlí 2015 23:06 Valsmenn hafa unnið þrjá leiki í röð í Pepsi-deildinni. vísir/ernir "
Ég er mjög ánægður með þennan sigur. Þetta var mikill slagur eins og við bjuggumst við en við mættum þeim í baráttunni og unnum góðan sigur," sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir 0-1 sigur hans manna á Leikni í kvöld. Valsmenn steinlágu sem frægt er orðið gegn Leikni í 1.umferð Pepsi-deildarinnar en hvað hefur breyst frá þeim leik? "Við vorum tilbúnir að berjast á móti þeim þegar báðir hálfleikarnir byrjuðu og þú þarft að gera það á móti Leikni," sagði Ólafur sem var ánægður með varnarleik Vals í kvöld. "Við urðum fyrir áfalli fyrir leik þegar við misstum bæði Thomas (Christensen) og Hauk (Pál Sigurðsson) en við erum með ágætis breidd í okkar hóp og þeir sem komu inn í liðið skiluðu sínu 100%," sagði Ólafur sem vonar að Thomas og Haukur verði orðnir tilbúnir fyrir næsta leik. Valsmönnum hefur gengið allt í haginn eftir tapið á móti Leikni í 1. umferðinni og eru nú komnir upp í 3. sæti deildarinnar. Ólafur kveðst sáttur með gengið og framfarirnar sem Valsliðið hefur sýnt í sumar en er þó enn með báða fætur á jörðinni. "Við höldum bara áfram að ná okkur í stig og þau þrjú sem við náðum í í dag voru mjög mikilvæg og vonandi höldum við áfram á sömu braut." Félagaskiptaglugginn opnaði í síðustu viku en Ólafur segir að Valsmenn ætli að reyna að styrkja lið sitt áður en hann lokar. "Við erum að skoða málin og það gætu dottið inn 1-3 leikmenn en það er erfitt að finna góða leikmenn. Við erum með sterkan og góðan hóp en við viljum styrkja okkur aðeins og erum að leita," sagði Ólafur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Ákærður fyrir að hnupla treyju LeBron sem seldist seinna á nær hálfan milljarð Körfubolti Fleiri fréttir „Ég var í smá sjokki“ Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Uppgjörið: FH - Víkingur 2-2 | Forza ragazzi! Uppgjör: Breiðablik - KA 1-1 | Umdeild vítaspyrna tryggði Íslandsmeisturunum stig Sjá meira