Grindavík komst upp í efri hlutann eftir sigur á Akureyri Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2015 12:01 Jósef Kristinn Jósefsson skoraði í kvöld. Vísir/Andri Marinó
Grindvíkingar eru að lifna við í 1. deild karla en liðið vann dramatískan 3-2 sigur á Þór á Þórsvellinum á Akureyri í kvöld. Með sigrinum komust Grindvíkingar upp í sjötta sæti deildarinnar. Grindavík komst í 3-0 í fyrri hálfleik en Þór minnkaði muninn í tvö mörk rétt fyrir hálfleik og svo ennfremur í eitt mark þegar fjórtán mínútur voru til leiksloka. Maciej Majewski markvörður bjargaði síðan öllum stigunum fyrir gestina úr Grindavík með því að verja vítaspyrnu Jóhanns Helga Hannessonar á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Tomislav Misura skoraði tvö mörk fyrir Grindavík og Jósef Kristinn Jósefsson var með eitt mark auk þess að leggja upp fyrsta markið fyrir Misura. Ármann Pétur Ævarsson og varamaðurinn Jónas Björgvin Sigurbergsson minnkuðu muninn fyrir Þórsliðið, Ármann Pétur eftir hornspyrnu og Jónas Björgvin eftir einstaklingsframtak. Grindvíkingar enduðu leikinn manni færri eftir að Ásgeir Þór Ingólfsson fékk sitt annað gula spjald en tókst að halda út og landa sigri og þremur stigum. Það munaði þó litlu eftir að Þórsarar fengu vítið í lokin. Grindavík fékk aðeins fjögur stig í fyrstu fimm leikjunum en hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum í 1. deildinni og þeir hafa skilað liðinu upp í efri hluta deildarinnar. Grindavíkurliðið hefur nú þrettán stig en liðið hoppaði upp fyrir Fram (10 stig), HK (12 stig) og Hauka (12 stig) í töflunni með þessum sigri. Þórsarar eru tveimur stigum ofar með fimmtán stig.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Dagný kveður West Ham með tárin í augunum Enski boltinn „Ekki sáttir við að Íslendingur kæmi að kenna þeim“ Fótbolti Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? Íslenski boltinn Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Íslenski boltinn Blikarnir hoppuðu út í á Fótbolti Reyndu að ráða Solskjær áður en þeir réðu svo Heimi Hallgríms Fótbolti Trump réði sjálfan sig í stórt starf á Ólympíuleikunum Sport Markvörður íslenska liðsins með fimm mörk Handbolti Sjáðu Hákon leggja upp mark fyrir Giroud Fótbolti Fleiri fréttir Fengið nokkur skilaboð eftir skipti frá Val til KR Sjáðu mörkin úr Bestu: Nú er hinn Pedersen bróðirinn farinn að skora líka „Ég var í smá sjokki“ Framari týndi boltanum í miðjum leik og Rikki G var alveg gáttaður Stúkan: Getur KR fallið úr deildinni? „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Natasha með slitið krossband Kári reynir að hjálpa HK upp um deild „Báðir endar vallarins mættu vera betri“ „Skemmtilegra þegar vel gengur“ Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-3 | Létt verk fyrir meistarana Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Sjáðu tvennu Sigurðar og snögg svör Víkinga Tómas Bent seldur til Skotlands Sigurður grautfúll: „Líður eins og við höfum tapað þessum leik“ „Dómur af himnum ofan“ Þurfa þrjú stig „ef við ætlum ekki að lenda í veseni“ „Ég veit ekkert hverjir þetta voru“ „Alltaf gaman að skora fyrir uppeldisfélagið“ Sjá meira