Mcgrath er fædd í Englandi árið 1970 og er algjörlega sjálflærð. Hennar einkennismerki hefur verið að nota fingurna frekar en bursta og að búa til sínar eigin vörur og efni sem hún notar í farðarnir. Hún varð fyrst þekkt uppúr 1990 þegar hún vann fyrir I-D magazine.
Síðan þá hefur hún unnið unnið með þekktustu ljósmyndurum heims á borð við Helmut Newton, Peter Lindbergh og Steven Meisel, sem vinnur varla án þess að hafa hana í sínu teymi.
Hún hefur hannað mörg af eftirminnilegustu förðunum sem sést hafa á tískupöllunum líkt og fyrir Dior og Alexander McQueen.
Árið 1999 hannaði hún snyrtivörulínu fyrir Armani og frá árinu 2004 hefur hún verið listrænn stjórnandi hjá Procter and Gamble, þar sem hún sér um Max Factor og Cover Girl.
Aliir sem einhvern áhuga hafa a förðun ættu að kynna sér verk Mcgrath og fylgja henni á Instagram, en hún er algjör listamaður í sínu fagi.
Fylgstu með Glamour á Facebook og Instagram.
Busy Busy!!! #BTS #Regram @louisvuitton @nicolasghesquiereofficial #MakeupByPatMcGrath #teampatmcgrath #backstagewithpatmcgrath hair by @paulhanlonhair @marieameliesauve
A photo posted by Pat McGrath (@patmcgrathreal) on May 6, 2015 at 7:46pm PDT

