Stórsigrar hjá ÍBV og Þór/KA | KR áfram eftir vítaspyrnukeppni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2015 22:09 Shaneka Gordon skoraði í stórsigri ÍBV á HK/Víkingi. vísir/daníel
Fimm leikir fóru fram í 16-liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í kvöld. Bikarmeistarar Stjörnunnar báru sigurorð af Breiðabliki í stórleik kvöldsins á Samsung-vellinum. Umfjöllun og viðtöl úr leiknum má finna með því að smella hér. Eyjakonur rúlluðu yfir 1. deildarlið HK/Víkings, 6-0, á Hásteinsvelli. Kristín Erna Sigurlásdóttir skoraði tvö mörk og þær Shaneka Gordon, Sabrína Lind Adolfsdóttir, Cloe Lacasse og Sigríður Lára Garðarsdóttir sitt markið hver. Þór/KA, sem er í 2. sæti Pepsi-deildarinnar, vann öruggan 4-0 sigur á ÍA í Boganum á Akureyri. Sandra María Jessen gerði tvennu og Andrea Mist Pálsdóttir og Kayla June Grimsley sitt markið hvor. Vesna Elísa Smiljkovic var hetja Vals gegn Þrótti R. en hún skoraði bæði mörkin í 1-2 sigri Valskvenna í leik sem var framlengdur. Jade A. Flory skoraði mark Þróttar. Vítaspyrnukeppni þurfti til að knýja fram úrslit í leik KR og Aftureldingar vestur í bæ. Staðan að loknum venjulegum leiktíma og framlengingu var 1-1 en KR-konur voru sterkari á svellinu í vítaspyrnukeppninni sem þær unnu 4-1. 16-liða úrslitunum lýkur svo á morgun með þremur leikjum; Augnablik og Grindavík mætast í Fífunni, Völsungur sækir Selfoss heim og Fylkir tekur á móti Haukum.Úrslitin í kvöld: ÍBV 6-0 HK/Víkingur Þór/KA 4-0 ÍA KR 1-1 Afturelding (4-1 eftir vítaspyrnukeppni) Þróttur R. 1-2 Valur Stjarnan 2-1 Breiðablik
Pepsi Max-deild kvenna Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 2-1 | Bikarmeistararnir verða í pottinum þgar dregið verður Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari í miklum baráttuleik. 5. júní 2015 14:53 Mest lesið „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Íslenski boltinn Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ Körfubolti Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Fótbolti Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Enski boltinn Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 2-1 | Bikarmeistararnir verða í pottinum þgar dregið verður Stjarnan stóð uppi sem sigurvegari í miklum baráttuleik. 5. júní 2015 14:53