Hafdís fékk silfur: Hélt innst inni að ég væri á undan Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 6. júní 2015 14:58 Hrafnhild, Hafdís og Wingfield í hlaupinu í dag. Vísir/Andri Marinó
Hafdís Sigurðardóttir tapaði öðru sinni fyrir Maltverjanum Charlotte Wingfield í dag. Í dag varð Hafdís að sætta sig við silfur í 200 m hlaupi en Wingfield vann einnig gull í 100 m hlaupi á þriðjudag. Hlaupið var þó skrautlegt, sérstaklega endaspretturinn, þar sem að Wingfield datt yfir marklínuna. „Ég er pínu svekkt með það sem gerðist á línunni en silfur er gott,“ segir Hafdís en svo ótrúlega vildi til að sigurvegari hlaupsins, Charlotte Wingfield, datt þegar hún var að koma í mark. „Ég hélt samt innst inni að ég væri á undan því þegar hún datt þá hélt ég að ég væri að hafa það. Hún datt eiginlega í markið,“ sagði Hafdís en frétt um það má lesa hér. Hafdís náði sínum besta tíma í þessari grein á Smáþjóðaleikunum í Lúxemborg fyrir tveimur árum, 21,37 sek. „En það var svolítill mótvindur á okkur sem segir ýmislegt. En ég er mjög sátt við þennan tíma miðað við að þetta er fyrsta keppnishlaup sumarsins hjá mér.“ Hafdís keppir í þrístökki á eftir en segist enginn þrístökkvari. „Ég var valin í þetta og ákvað að taka því í hálfgerðu gríni bara. Ég ætla bara að reyna mitt besta.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Körfubolti Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Fótbolti Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Enski boltinn Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Körfubolti Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Fótbolti Eva bætti hvert metið á fætur öðru Golf Fleiri fréttir Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sokkunum fórnað og mikil spenna fyrir EM í Finnlandi Sjáðu þrennu Barcola og alla markasúpuna í Austurríki Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki Antonelli getur orðið yngsti heimsmeistari sögunnar í næstu keppni Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Hvað verður um Martinez eftir gagnrýnina? Heimir sagður á leið til ÍA og Martinez óð á súðum Kjartan meiddist illa og verður lengi frá Eva bætti hvert metið á fætur öðru Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Uppsagnir hjá Arsenal Allt annað að sjá Helenu í dag: „Gríðarlegur kraftur í henni“ Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Náði að hefna sín gegn ítölsku félögunum Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Bakgarðsáskorunin: Málgleðin helsti veikleikinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Sjá meira