Elvar Már spilar með Njarðvíkurliðinu í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. mars 2015 14:46 Elvar Már Friðriksson og Logi Gunnarsson náðu vel saman í fyrra. Vísir/ÓskarÓ
Elvar Már Friðriksson verður með Njarðvíkurliðinu í kvöld þegar liðið mætir Stjörnunni í 21. og næstsíðustu umferð Dominos-deildar karla í körfubolta. Þetta kemur fram á karfan.is. Njarðvíkingar eru í baráttunni við Hauka og Stjörnuna um að ná heimaleikjarétti í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar og það er ljóst að þessi liðsstyrkur gæti ekki komið á betri tíma fyrir Njarðvíkurliðið. Elvar Már og félagar í LIU Brooklyn komust ekki lengra en í átta liða úrslit úrslitakeppninnar og verða ekki með í mars-æðinu í háskólaboltanum á þessu tímabili. Elvar gat því komið heim í vorfríinu og hefur ákveðið að hjálpa sínu félagi í gríðarlega mikilvægum leik í kvöld. „Ég er búin að æfa já með liðinu og líður bara vel líkt og alltaf í Ljónagryfjunni. Ég var fljótur að komast inn í sóknarkerfin og þetta er bara spennandi að fá að taka þátt í þessum tveimur leikjum sem eftir eru hjá liðinu núna." sagði Elvar Már Friðriksson í viðtali við Karfan.is. Elvar Már Friðriksson var á sínu fyrsta ári með LIU Brooklyn en hann var með 8,9 stig og 3,8 stoðsendingar að meðaltali í leik, var þriðji stigahæsti leikmaður liðsins og sá sem gaf flestar stoðsendingar. Elvar sem fyrr segir í svo kölluðu vorfríi (Springbreak) frá skólanum og ákvað að koma til Íslands og njóta sín með fjölskyldunni. „Það er nú ekki loku fyrir því skotið að hann verði jafnvel með okkur í úrslitakeppninni en við sjáum bara til hvernig þetta þróast en við hefjum leik á þessu," sagði Gunnar Örlygsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur í viðtali við karfan.is.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira