Bjarni Þór Viðarsson skrifaði undir hjá FH Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. febrúar 2015 13:12 Bjarni Þór Viðarsson við undirritunina í dag. Vísir/Valli
FH-ingar héldu blaðamannafund í dag þar sem Bjarni Þór Viðarsson skrifaði undir samning við félagið og mun Bjarni Þór því spila með Davíð Þór Viðarssyni, bróður sínum, í fyrsta sinn í Pepsi-deildinni næsta sumar. Bjarni Þór var síðast í herbúðum danska liðsins Silkeborg en samningi hans var rift á dögunum og hefur Bjarni Þór ákveðið að koma heima og spila með uppeldisfélagi sínu eftir tíu ára dvöl erlendis. Bjarni Þór er 26 ára miðjumaður og fór fyrst út til Everton árið 2005. Hann var fyrirliði 21 árs landsliðsins sem komst í úrslitakeppni EM sumarið 2011 en aðeins einn leikmaður, Hólmar Örn Eyjólfsson, hefur spilað fleiri landsleiki fyrir 21 árs landslið Íslands. Bjarni Þór skrifaði undir þriggja ára samning við FH-liðið en lítið hefur gengið hjá honum í atvinnumennskunni undanfarin ár og næsta sumar ætti að vera kjörið tækifæri fyrir hann að koma knattspyrnuferlinum aftur á réttan kjöl. Bjarni Þór spilaði aldrei með FH í úrvalsdeildinni en hann var bara sextán ára gamall þegar hann fór út. Síðan þá hefur hann spilað með liðum í Englandi, Belgíu og Danmörku. Þetta er góður liðsstyrkur fyrir FH sem missti nýverið Finn Orra Margeirsson til norska liðsins Lilleström.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Handbolti „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Ósætti við úrelta löggjöf: „Sennilega eina þjóðin eftir í heiminum“ Sport „Vil miklu frekar eiga feril í MMA heldur en að vinna skrifstofustarf“ Sport Tyson segist ekki berjast vegna peninganna Sport Tekur með sér lifrarpylsu, grjónagraut og sviðasultu í bakgarðshlaupið Sport Óttast um öryggi fjölskyldunnar og neyðist til að flytja Sport Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Handbolti Víkingar spila á Íslandi í dagsbirtu Fótbolti Var kennari og þjálfaði karlalið þegar hann stýrði kvennalandsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Nkunku tryggði sigur eftir stoðsendingu Sancho Sjá meira