Fótbolti

Víkingur Ó varði titil sinn | Afturelding vann í kvennaflokki

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Endurtekið efni hjá Víkingi
Endurtekið efni hjá Víkingi
Úrslitaleikir Íslandsmeistaramótsins í innanhús fótbolta, futsal, voru leiknir snemma dags. Víkingur Ólafsvík varði titil sinn í karlaflokki og hjá stelpunum vann Afturelding.

Mikil spenna var í kvennaflokki og var jafnt að loknum venjulegum leiktíma 3-3. Afturelding skoraði tvö mörk í framlengingunni og tryggði sér 5-3 sigur.

Minni spenna var hjá strákunum þar sem Víkingur var mun betri aðilinn gegn Leikni/KB og vann öruggan 4-0 sigur. Annað árið í röð sem Víkingur hampar titlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×