Umfjöllun: Svíþjóð - Ísland 24-16 | Hörmungarbyrjun strákanna í Katar Eiríkur Stefán Ásgeirson í Doha skrifar 16. janúar 2015 15:15 vísir/eva björk
Óhætt er að segja að Ísland hafi farið illa af stað á heimsmeistaramótinu í handbolta. Strákarnir okkar mættu Svíum í Al Sadd höllinni í Doha og steinlágu, 24-16.Eva Björk Ægisdóttir, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis á mótinu, tók myndirnar sem fylgja umfjölluninni. Helstu sóknarmenn íslenska liðsins og stærstu stjörnurnar voru svo ólíkir sjálfum sér að annað eins hefur vart sést í einum og sama leiknum. Aron Pálmarsson, Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson áttu eina sínu verstu landsleiki í langan tíma og við það komst sóknarleikur Íslands aldrei almennilega í gang. Þó svo að vörn og markvarsla hafi oft á tíðum verið þokkaleg náðu Svíar snemma forystu sem þeir létu aldrei af hendi. Strákarnir voru fimm mörkum undir í hálfleik og aldrei nálægt því að ógna forystunni í síðari hálfleik. Mattias Andersson átti stórleik í marki Svía en leikáætlun þeirra gekk fullkomnlega upp. Þeim tókst að að draga allar vígtennur úr íslensku sókninni og eftirleikurinn var auðveldur. Andersson var gjörsamlega óstöðvandi í markinu, en hann varði 21 skot í leiknum eða 57 prósent þeirra skota sem hann fékk á sig. Björgvin Páll varði 14 skot eða 37 prósent. Leikurinn byrjaði hreint skelfilega fyrir okkar menn. Svíar komust í 2-0 forystu eftir að hafa komist inn í línusendingu Arons og var uppskrift leiksins nákvæmlega eftir þeirra höfði. Þeir ætluðu að spila þéttan varnarleik og þvinga strákana í erfið skot sem Andersson myndi taka. Lengst af gekk það eftir. Ísland komst reyndar í tvöfalda yfirtölu og jafnaði metin í 2-2 eftir hana en sóknarleikur liðsins var í molum. Aron Kristjánsson tók leikhlé eftir þrettán mínútur en það hafði ekkert að segja. Eftir rúman stundarfjórðung var staðan 7-2 og svo 9-3, enn eftir mistök Arons. Það var ekki fyrr en að Alexander skoraði í undirtölu og þar með fjórða mark Íslands að eini góði kafli fyrri hálfleiks fór í gang. Ísland skoraði þrjú mörk í röð, minnkaði muninn í 9-6 en þá tóku Svíar aftur völdin og skoruðu þrjú af síðustu fjórum mörkum fyrri hálfleiksins. Staðan 12-7 að honum loknum. Björgvin Páll varði sjö skot í fyrri hálfleik og bjargaði því að Svíar náðu einfaldlega ekki að gera út um leikinn í fyrri hálfleik. Íslenska vörnin átti fínan fyrri hálfleik sömuleiðis en á meðan sóknarleikur Íslands var einfaldlega óboðlegur var það ekki til mikils. Arnór Atlason kom þó inn af ágætum krafti undir lok hálfleiksins og hleypti einhverju lífi í sóknina. Arnór skoraði þrjú mörk í fyrri hálfleik en aðrir eitt eða ekkert. Mattias Andersson átti stórleik í marki Svía en naut þess að hafa öfluga vörn fyrir framan sig sem íslenska sóknin átti í miklum erfiðleikum með. Andersson varði tíu skot í fyrri hálfleiknum og var með 59 prósenta hlutfallsmarkvörslu. Björgvin Páll varði fyrsta skot síðari hálfleiksins, rétt eins og þess fyrri, en það átti litlu eftir að breyta. Það var þó aðeins meiri fjölbreytni og barátta í sókninni en leikur íslenska liðsins komst aldrei almennilega í gang. Svíarnir héldu okkar mönnum í öruggri fjarlægð. Það gekk allt á afturfótunum. Arnór Þór skaut í stöng úr víti, hraðaupphlaupsógning var engin - þó svo að í tvígang hafi dómarar leiksins stöðva hraðaupphlaup Íslands að ástæðulausu. Til að toppa allt saman hnakkrifust Ásgeir Örn og Björgvin Páll um miðjan síðari hálfleikinn. Mestu máli skipti að skytturnar okkar frábæru, Aron og Alexander, voru svo langt frá sínu besta að það nær ekki nokkurri átt. Skotin voru víðsfjarri og sendingarnar margar í sama gæðaflokki. Sænska vörnin er góð - en hún er ekki svona góð. Sænska vörnin og slakur íslenskur sóknarleikur lét Mattias Andersson líta stórkostlega út í marki Svía. En hann bætti heilmiklu við eins og markverðir í hans gæðaflokki gera. Varin víti og varin dauðafæri voru til staðar og í slíkum tilfellum er það borin von að ætla að koma til baka úr vonlausri stöðu. Arnór Atlason var sá eini sem eitthvað gerði að viti í sóknarleik Íslands. Vörnin átti ágæta spretti og Björgvin Páll sömuleiðis í markinu. En þá er það upptalið. Þrátt fyrir sýnilegan baráttuvilja strákanna var allt of margt í ólagi. Vonum að fall sé fararheill í Katar því þessi byrjun gefur allt annað en góð fyrirheit fyrir þáttöku Íslands í heimsmeistarakeppninni.Ekki missa af neinu sem gerist á HM. Fylgdu Vísi á Twitter, Facebook og Snapchat (notendanafn:sport365).
HM 2015 í Katar Mest lesið Ísland - Litáen 86-85 | Elvar tryggði sigurinn á ögurstundu Körfubolti Stórlið mætast í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu Fótbolti Bauð gullliðinu upp á McDonald's: „Veit ekki hvernig hann er enn á lífi“ Sport Fjarbúð á enda og eltir nú drauminn Sport Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Íslenski boltinn Ensku liðin bíða Hákonar og Elíasar Fótbolti Á íslenska konu og barn en mætir Íslandi í kvöld Körfubolti Í bann vegna lélegrar tungumálakunnáttu eiginmannsins Sport Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Handbolti Sjö handteknir í Noregi grunaðir um að hagræða úrslitum Fótbolti Fleiri fréttir ÍR-ingar kalla á hetju bikarúrslitaleiksins fyrir þrettán árum „Ég ætla ekki að bera ábyrgð á því“ Segir Guðjón Val besta þjálfara heims Bjarni Fritzson: „Svoleiðis eru sigurvegarar, þeir vilja bara vinna leikinn“ Uppgjör: ÍR-KA 32-31 | ÍR í bikarúrslit í fyrsta sinn í tólf ár Viktor Gísli varði vel og skoraði líka í Meistaradeildinni Leik lokið: FH-Haukar 21-25 | Haukar í bikarúrslit eftir sigur á FH Elvar allt í öllu í útisigri í Íslendingslag „Hvar leikurinn er spilaður kemur mér í rauninni ekkert við“ „Þegar við erum góðar finnst mér við vera frábærar“ „Þetta var aldrei eitthvað sjálfgefið“ Uppgjörið: Valur - KA/Þór 29-22 | Valskonur fylgja Haukum í úrslit Leik lokið: Haukar-Fram 32-29 | Haukakonur aftur í bikarúrslitin „Af hverju ekki?“ Harmleikur á handboltaleik Reynir með tólf marka kvöld í Evrópudeildinni Stiven fagnaði Íslendingaslag en átta mörk Óðins dugðu ekki Kisurnar hermdu eftir kanínunni fyrir bikarvikuna „Auðmjúkur, þakklátur og stoltur“ Í hefndarhug til Íslands eftir „fíaskóið“ á EM KA hafði betur gegn ÍBV í spennutrylli á Akureyri Auðvelt hjá Magdeburg og Íslendingar áberandi Benedikt ekki brotinn en frá næstu vikurnar „Mín mistök að hafa ekki komið Bjögga betur inn í mótið“ Þorsteinn Leó með fjögur í fjórða sigri Porto í röð Púðurskot hjá Viggó og áfram gengur ekkert hjá Göppingen Þórsarar upp úr fallsæti Valskonur völtuðu yfir Stjörnuna Uppgjör: Fram - ÍR 26-34 | Öruggur og mikilvægur sigur ÍR Eyjakonur höfðu betur í Suðurlandsslagnum Sjá meira