Finnur Orri rétt missir af leikjameti Arnars Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2014 08:00 Arnar Grétarsson í leik með Breiðabliki í bikaúrslitaleiknum 2009. Vísir/Daníel
Finnur Orri Margeirsson hefur ákveðið að yfirgefa Breiðablik en eftir nýlokið tímabil í Pepsi-deildinni í fótbolta var hann aðeins þremur leikjum frá því að jafna félagsmet Blika yfir flesta leiki í efstu deild. Leikjametið á einmitt Arnar Grétarsson, nýráðinn þjálfari Blika í Pepsi-deild karla. Arnar þarf reyndar að hafa „áhyggjur“ af öðrum leikmanni því Olgeir Sigurgeirsson vantar bara tólf leiki til að jafna metið. Arnar Grétarsson lék 143 leiki í efstu deild fyrir Breiðablik í tveimur skömmtun, fyrst 83 leiki á árunum 1991 til 1996 og svo 60 síðustu deildarleiki sína á ferlinum frá 2006 til 2009 eftir að hann kom heim úr atvinnumennsku. Finnur Orri hefur þrátt fyrir ungan aldur leikið 140 leiki í efstu deild fyrir Breiðablik frá því að hann lék sinn fyrsta leik sumarið 2008. Finnur Orri lék sinn fyrsta leik á móti Keflavík 30. júní 2008 og hefur síðan aðeins misst af 6 af síðustu 146 leikjum Blika í úrvalsdeildinni.Flestir úrvalsdeildarleikir fyrir Breiðablik: Arnar Grétarsson 143 Finnur Orri Margeirsson 140 Vignir Baldursson 133 Olgeir Sigurgeirsson 131 Kristján Jónsson 118 Sigurjón Kristjánsson 112
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Umræðan væri önnur ef um Rashford væri að ræða en ekki Grealish Enski boltinn „Þetta félag mun aldrei deyja“ Enski boltinn „Við erum of mistækir“ Handbolti Barnalegir og hefðu getað kastað leiknum frá sér Enski boltinn Á stall með Jordan eftir frammistöðu kvöldsins Körfubolti LeBron frá í vikur frekar en daga Körfubolti Keane gagnrýndi Arsenal: „Hvað gerir annað sætið fyrir þig? Þú vilt vinna titla“ Enski boltinn Atalanta batt enda á sigurgöngu Juventus Fótbolti Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Handbolti Glódís úr leik í fyrsta sinn á ferlinum Fótbolti Fleiri fréttir Skrautlegt mark, glæsimark og allt brjálað í sigri KR „Ljótasta tækling ársins komin í íslenska boltanum“ FH sækir liðsstyrk út fyrir landsteinana Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist Í skýjunum með að hreppa Þórdísi Hrönn Níu mörk þegar KR vann ÍBV QPR vildi Þorra en Fram sagði nei Fylkismenn komust áfram á kostnað Íslandsmeistara Blika Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Thomsen mættur aftur í íslenska boltann Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Sjá meira