Skoðun

Borgin, heimkynni okkar

Hjálmar Sveinsson skrifar
Ein mikilvægasta lífskjarabarátta okkar tíma snýst um að borgarumhverfið sé heilsusamlegt, hagkvæmt, skjólsælt, skilvirkt, umhverfisvænt, fallegt, öruggt, réttlátt og endurnærandi. Já, einmitt endurnærandi! Við höfum sagt skilið við þá gömlu hugmynd, sem var lengi ríkjandi, að borgin sé vélrænn staður þar sem við dveljum, nauðug viljug, til að sækja vinnu og skóla á virkum dögum en flýtum okkur síðan burt úr bænum um helgar eða lokum okkur af inni í íbúðum okkar. Segja má að borgir séu komnar aftur í tísku, eftir nokkuð langt niðurlægingartímabil sem varði frá 1970 til 2000, þegar allir virtust á leið út úr borgunum.

Borgirnar toga sífellt fleiri til sín. Meira en helmingur mannkyns býr nú í borgum. Austan hafs og vestan eru flestir sammála um að borgirnar geti ekki þanist út endalaust. Það er löngu komið í ljós að gott byggingarland er takmörkuð verðmæti, jarðefnaeldsneyti er ekki ótakmarkað og loftmengun af völdum mikillar bílaumferðar er staðbundið og hnattrænt vandamál.

Áhersla á lífsgæði, lýðheilsu, betri landnýtingu, þéttingu byggðar gengur eins og rauður þráður í gegnum nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík sem á að gilda til ársins 2030. Sama má segja um tillögu að nýju skipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið í heild sinni til ársins 2040.

Borgin er umhverfið sem við, borgarbúarnir, höfum skapað okkur. Hún er heimkynni okkar. Hún er daglegt hlutskipti okkar. Hún tekur á móti okkur þegar við förum út á morgnana og fylgjum krökkunum í skólann, förum í vinnuna, kaupum inn, mælum okkur mót við fólk, skreppum í sund, leitum til læknis, mætum í brúðkaup og jarðarför.

Borgin mótar okkur og það sem er ekkert síður mikilvægt, við mótum borgina. Gott líf borgarbúans felst í því að vera dagsdaglega virkur notandi borgarinnar. Við vöskum upp á heimili okkar, tökum til og eldum góðan mat. Gott heimilislíf felst ekkert síður í þessum hversdagslegu athöfnum en því að borða matinn.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×