Hugsar þú vel um þig og þína? 24. október 2014 10:45 Sigga Dögg kynfræðingur segir tíma til kominn að tala um píkuna á nýjan hátt. Hún mælir með Natracare fyrir líkamann og umhverfið. mynd/pjetur
Að þessu spyr Natracare og vísar í heilagan einkastað kvenna. Kynfræðingurinn Sigga Dögg notar dömubindi og tappa frá Natracare og segir staðreynd að flestar konur hugsi einum of vel um píkuna sína. „Píkan er sjálfhreinsandi og þarf hvorki klór né önnur ertandi hreinsiefni þótt hún sé á blæðingum. Mörgum konum hættir til að hugsa of vel um píkuna sína með lyktareyðandi efnum og ertandi sápum sem eyðileggja náttúrulega sýklaflóru og geta komið af stað vítahring sveppasýkinga. Við þurfum því að tala um píkuna á nýjan hátt og um hvað sé eðlilegt í þeim efnum.“ Þetta segir Sigga Dögg kynfræðingur sem notað hefur Natracare í áraraðir. „Natracare er betra fyrir líkama okkar og umhverfið. Þetta tvennt spilar saman því allar viljum við skilja eftir okkur lítil umhverfisfótspor. Mörg önnur dömubindi innihalda plast, klór og óæskileg auka- og rotvarnarefni sem alið geta á allskyns veseni og sýkingum. Með Natracare er það vandamál úr sögunni því Natracare-tappar og -bindi eru klórlaus, gerð úr lífrænt vottaðri bómull og náttúrulegum efnum.“ Sigga Dögg segir brýnt að foreldrar stýri dætrum sínum þegar þær taka sín fyrstu skref í notkun dömubinda. „Miklu skiptir hvað notað er frá upphafi því við erum að tala um langtímanotkun á dömubindum og töppum í hverjum einasta mánuði í áratugi. Við þurfum að kynna fyrir þeim heilnæmustu og umhverfisvænstu vörurnar og kenna þeim að takmarka notkun rotvarnarefna í öllu því vöruvali sem nota þarf fyrir líkamann. Dömubindi og tappar liggja þétt að þeirra viðkvæmasta svæði sem er beintengt blóðrásinni og píkan þar sérstaklega viðkvæm þar sem óæskileg efni eiga greiða leið inn í líkamann.“Fagurt tákn blæðinga Sigga Dögg segir blæðingar kvenna vera viðkvæmt umræðuefni. „Það á sér bæði sögulegar og trúarlegar rætur. Í sumum trúarritum eru textar um að konur á blæðingum séu óhreinar og megi ekki gera þetta og hitt. Blæðingar hafa því verið nánast bannhelgar og af þeim sökum haldist sem kvennamál. Það er auðvitað einkennilegt þar sem helmingur mannkyns eru konur með píkur og snerta mannkyn allt með einum eða öðrum hætti.“ Fyrir tíma nútíma dömubinda notuðu konur ýmsar útfærslur af heimagerðum bindum. „Þá notuðust konur við tuskur eða bleiur sem þær festu með beltum og voru svo þvegnar. Þótt það hljómi ekki geðslega nú er það þó miklu heilsusamlegra fyrir píkuna heldur en efnafull dömubindi með plasti og klór.“ Hún segir blæðingar vera fagurt tákn um mánaðarlega hreinsun og hversu megnugur kvenlíkaminn er. „Í sumum menningarsamfélögum eru blæðingar fagnaðarefni og þar haldið upp á hið mánaðarlega en í vestrænum samfélögum er talin ástæða til að fara í felur á blæðingum. Ekki þykir viðeigandi að túrtappi sjáist í hendi á leið inn á bað, heldur þarf að fela hann í lófanum og helst hvísla um ástandið. Þá er þrálát sú mýta að stelpur séu snælduóðar í skapi á túr og því margar neikvæðar tengingar um blæðingar í stað þess að líta á þær sem heillandi lið í því að líkaminn fullorðnist.“Natracare fyrir náttúruna Margir kvensjúkdómalæknar ráðleggja konum með viðkvæma húð að nota Natracare-bindi til að draga úr snertingu við klórbleikjuð efni og vörur sem innihalda gerviefni, latex og rakadræg efni úr jarðolíu. Notkun á bindum og töppum úr lífrænni bómull minnka líkur á sýkingum eða eitrun sem gerast á ári hverju. „Við þurfum að leyfa píkunni að sjá um sig sjálf. Þannig er aldrei mælt með því að skola inn í leggöng og alltaf þarf að passa upp á að skipta um túrtappa. Ellegar súrna þeir og geta aukið hættu á alvarlegum sýkingum. Þá hefur gleymst að fræða stúlkur og konur um að túrtappar fáist í mismunandi stærðum eftir magni blóðs,“ segir Sigga Dögg. Hún finnur mikinn mun á því að nota Natracare-bindi og -tappa. „Það hafði mikil áhrif á mig að lesa um öll þau rotvarnar- og aukaefni sem mörg dömubindi innihalda og því fór ég að lesa utan á pakkningarnar þeirra, rétt eins og ég les mér til um innihald matvæla. Öll þessi aukaefni eru ekki boðleg okkur konum og þegar búið er að baða sig og farða á morgnana, og auk þess bæta við dömubindi með klór og plasti, erum við farnar að ofbjóða líkama okkar með stórum pakka af skaðlegri efnasamsuðu sem drepur eðlilega sýklaflóru. Með Natracare veljum við rétt og getum á sama tíma treyst því að reisa ekki heilu Hörpu-hallirnar af dömubindaúrgangi. Allar vörur Natracare eru yfir 99 prósent vistvænar, án plasts, ilm- og bleikiefna og innihalda lífræna bómull sem brotnar eðlilega niður í náttúrunni og verða að frjósamri moltu. Við það bætist svo næringarrík efnasamsetning tíðablóðs fyrir jarðveginn.“ Allar upplýsingar um Natracare er að finna á natracare.is.
Mest lesið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Ástarbréf til íslenskra költmynda Tónlist Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Fleiri fréttir Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Svona getur lyfjaskammtarinn einfaldað daglegt líf Sprenging í sölu saltvatnspotta á Íslandi Kona fagnar tólf árum í nýjum og glæsilegum Firði Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútuvog Húðin breytist með aldrinum: Hagkaup leggur aukna áherslu á fræðslu „Það er sannarlega óþarfi að mygla inni“ Nýsköpun frá Icewear fyrir íslenskt veðurfar Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Sjá meira