Skoðun

Fortíðarþrá eða framtíðarsýn

Már Ingólfur Másson skrifar
Ég fermdist árið 1996. Fermingardagurinn sjálfur er ekkert voðalega eftirminnilegur en gjafirnar eru það, sérstaklega utanlandsferðin til Köben að heimsækja stóra bróður.

Ég man vel eftir því að sitja í Leifsstöð með Walkman-vasadiskó að hlusta á Skunk Anansie-kassettu, að sjálfsögðu kveikti ég á Dynamic Bass Boost til að fá meiri kraft í þetta.

Þarna var ég að klára 8. bekk. Ofurtöffari með vasadiskó. 18 árum seinna sérðu aðeins vasadiskó á söfnum og stöku nytjamarkaði. Tækin hafa breyst, tölvur höfðu um það bil 8 mb vinnsluminni og geymslusvæði borðtölvunnar með túbuskjánum var um 1 gígabæt. Þráðlaust net var varla til nema í vísindaskáldsögum og farsímar nýlunda.

18 ár eru ekki langur tími en á þessum tíma hefur ansi margt breyst í samfélaginu okkar. Núna getum við keypt síma sem eru öflugri en fermingartölvurnar 1996. Við getum verið alls staðar í sambandi við alla, við höfum aðgang að upplýsingum sem fyrir 18 árum voru bara fyrir innvígða. Samfélagið er að mestu nettengt og stór hluti af samskiptum okkar fer fram í gegnum netið með einum eða öðrum hætti.

Aftarlega á merinni

Því skýtur það skökku við að Árborg sé svona aftarlega á merinni þegar kemur að nútímavæðingu skólanna. Ekki er við skólana sjálfa að sakast, veit ég af eigin raun að þeir eru tilbúnir í „stökkið“ yfir í nútímann. Ekki liggur boltinn hjá Fræðslusviði heldur. Ég leyfi mér að fullyrða að allir þeir sem koma að fræðslumálum í sveitarfélaginu eru tilbúnir, nú þurfa kjörnir fulltrúar að fylgja með!

Vissulega er kostnaður fólginn í því að netvæða skólana en það er kostnaður sem margborgar sig. Við erum í dag að undirbúa stóran hluta grunnskólanema undir störf sem eru ekki til. Þráðlaust og opið net er ekki lúxusvara í skólum, það er jafnmikil nauðsyn og bækur og pennaveski.

Nú stöndum við frammi fyrir einfaldri spurningu. Ætlum við að taka skrefið inn í nútímann, setja aukinn kraft í að netvæða ALLA skóla í Árborg, bæði leik- og grunnskóla, og gera það hratt og vel eða eigum við að grafa upp Sony Walkman með Dynamic Bass Boost og leyfa framtíðinni að þjóta fram hjá?




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×