Allir nema einn spá KR-ingum titlinum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. apríl 2014 07:00 Pavel Ermolinskij verður í stóru hlutverki hjá KR. Fréttablaðið/valli
Fréttablaðið fékk sjö reynda menn úr Dominos-deild karla til þess að spá um hvernig úrslitaeinvígi KR og Grindavíkur fari en fyrsti leikurinn er í DHL-höllinni í Frostaskjóli klukkan 19.15 á annan dag páska. Allir leikir úrslitaeinvígisins verða í beinni á Stöð 2 Sport. KR beið í fjóra daga til að fá að vita um mótherja sína en Grindavík tryggði sér sætið með sigri í oddaleik á móti Njarðvík. Þetta verður þriðja einvígi KR og Grindavíkur um titilinn en KR vann bæði 2000 (3-1) og 2009 (3-2). Grindavík hefur unnið titilinn tvö undanfarin ár en KR vann hann síðast vorið 2011. Sex af sjö spámönnum eru á því að KR verði meistari, allir nema Örvar Þór Kristjánsson fráfarandi þjálfari ÍR, en fjórir þeirra búast við að úrslitin ráðist í oddaleik eins og þegar Grindavík vann í fyrra. KR er með heimavallarréttinn og það lið hefur unnið titilinn undanfarin þrjú ár og alls fimm sinnum á síðustu sex árum. KR-ingurinn Pavel Ermolinskij fékk fjögur af sjö atkvæðum þegar spurt var um hvaða leikmaður verði kosinn bestur í úrslitaseríunni en liðsfélagar hans, Martin Hermannsson og Brynjar Þór Björnsson fengu eitt atkvæði hvor sem og Lewis Clinch hjá Grindavík.Spámenn Fréttablaðsins:Einar Árni Jóhannsson, Njarðvík: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Brynjar Þór Björnsson, KR.Teitur Örlygsson, Stjörnunni: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Benedikt Guðmundsson, Þór Þorl.: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Ívar Ásgrímsson, Haukum: KR vinnur, 3-2 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.Magnús Þór Gunnarsson, Keflavík: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Martin Hermansson, KR.Örvar Þór Kristjánsson, ÍR: Grindavík vinnur, 3-2 - Bestur: Lewis Clinch, Grindavík.Ingi Þór Steinþórsson, Snæfelli: KR vinnur, 3-1 - Bestur: Pavel Ermolinskij, KR.
Dominos-deild karla Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald Íslenski boltinn Fékk hræðilegar fréttir nokkrum dögum fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira