Skoðun

Ekkert nema froða

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fyrir sirka níu árum síðan urðum við félagarnir í vinahópnum okkur úti um bjórkút og gamla bjórdælu. Úr varð ágætis partí. Þegar húsið var farið að fyllast kom í ljós að dælan virkaði ekki sem skyldi. Við áttum nóg af bjór en komum honum ekki á leiðarenda í glær plastglös gestanna. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fengu þeir nánast ekkert annað en hnausþykka og hvíta froðu.

Þetta froðupartí kom upp í hugann um daginn þegar stjórnendur Landsnets undirstrikuðu á kynningarfundi fyrirtækisins hversu mikilvægt það er að flutningskerfi raforku hér á landi verði eflt. Það er nefnilega þannig að kerfið hefur út af ýmsum ástæðum ekki tekið nauðsynlegum breytingum á síðustu árum. Landsnet getur því ekki flutt raforku á milli landshluta með viðunandi hætti og fyrirtæki og íbúar víða um land eru farin að finna fyrir því.

Í janúar kynnti Landsvirkjun áform um orkuskerðingu til stórnotenda sökum bágs vatnsbúskapar í lónum fyrirtækisins. Orkuskerðingin hefur nú staðið yfir í rúma tvo og hálfan mánuð og samtals kostað Landsvirkjun, Landsnet, þjóðarbúið og stórnotendur raforku milljarða.

Landsvirkjun þurfti að ráðast í skerðinguna á sama tíma og næg raforka var til á kerfum Landsnets. Á Austurlandi var til orka en það var ekki hægt að koma henni til stórnotenda fyrir sunnan og því þurftu stórkaupendur, hvar sem þeir eru staddir, að þola skerðinguna. Alcoa Fjarðaál á Reyðarfirði mun að öllum líkindum tapa yfir einum milljarði króna þrátt fyrir að vatnsstaðan í Hálslóni, miðlunarlóni Kárahnjúkavirkjunar, hafi verið ágæt. Álframleiðandinn þurfti einnig að draga úr framleiðslu í maí í fyrra þegar tilkynnt var um orkuskerðingu sem aldrei varð af.

Sama hvar við stöndum í virkjunarmálum hljótum við öll að vera sammála um að sú orka sem þegar hefur verið virkjuð, með tilheyrandi áhrifum, þarf að komast til notenda svo úr henni sé hægt að skapa verðmæti. Allt annað er vanvirðing við umhverfið og þá íbúa landsins og aðrar lífverur sem orðið hafa fyrir áhrifum af virkjunarframkvæmdum síðustu áratuga.

Staðreyndin er hins vegar sú að ríkisstjórnin og fyrirrennarar hennar hafa ekki mótað skýra stefnu í þessum málum. Þegar flutningsgetan er eins takmörkuð og raun ber vitni er allt tal ráðamanna og viljayfirlýsingar um frekari uppbyggingu orkufreks iðnaðar hér á landi, ekkert annað en hnausþykk og hvít froða.

Markaðshornið er skoðanapistill í Markaðnum, vikulegu fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagslíf. Pistillinn birtist í Markaðnum 9. apríl 2014.




Skoðun

Sjá meira


×