Rolf Toft samdi við Víking til tveggja ára Tómas Þór Þórðarson skrifar 17. desember 2014 11:51 Rolf Toft tekur Veigar Pál ekki oftar á háhest. vísir/andri marinó
Pepsi-deildar lið Víkings hefur náð samningum við danska framherjann Rolf Toft, samkvæmt heimildum Vísis, og spilar hann með liðinu í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Toft kom til Stjörnunnar í stað Jeppe Hansen þegar félagaskiptaglugginn var opnaður síðasta sumar, en hann skoraði sex mörk í ellefu leikjum í Pepsi-deildinni og tvö mörk í þremur Evrópuleikjum. Daninn gerði samning við Stjörnuna út tímabilið og ákvað að semja ekki aftur við Íslandsmeistarana. Hann ætti að styrkja sveit Víkinga mikið, en Fossvogsliðið leikur í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 23 ár eftir að hafna í fjórða sæti Pepsi-deildarinnar á síðustu leiktíð.Uppfært: 11.56 Víkingar hafa sent frá sér fréttatilkynningu þar sem þeir staðfesta að Rolf Toft er búinn að semja við félagið til tveggja ára. „Knattspyrnudeild Víkings hefur samið við danska framherjann Rolf Toft um að leika með félaginu næstu 2 árin. Rolf sem er 22 ára gamall lék með Stjörnunni síðastliðið sumar og skoraði 6 mörk í 11 deildarleikjum fyrir Íslandsmeistarana auk þess sem hann skoraði gríðarlega mikilvægt sigurmark gegn Lech Poznan í Evrópukeppninni síðastliðið sumar. Áður lék Rolf fyrir AaB og Vejle BK í heimalandinu. Knattspyrnudeild Víkings lýsir yfir mikilli ánægju með þennan liðsstyrk og hlakkar til að njóta krafta hans næstu tvö árin,“ segir í fréttatilkynningu Víkinga.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Segja að nýja reglan eyðileggi sportið Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Enn á lyfjum eftir súr töp á ferlinum Fótbolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Fleiri fréttir KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Sjá meira