Kolo Touré: Brendan Rodgers er gáfaður eins og Wenger Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2014 07:45 Arsene Wenger og Brendan Rodgers. Vísir/Getty
Kolo Touré, núverandi leikmaður Liverpool og fyrrum leikmaður Arsenal, segir að knattspyrnustjóri sinn í dag, Brendan Rodgers, sé að mörgu leyti líkur Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal frá árinu 1996. Liverpool-liðið hefur ekki unnið leik í nóvember (búnir að spila fimm) og fengu á sig jöfnunarmark á 88. mínútu í Meistaradeildinni á móti Ludogorets á miðvikudagskvöldið. „Þetta er erfiður tími fyrir alla en við verðum að standa saman og berjast fyrir þennan knattspyrnustjóra. Hann er þess virði því hann er einn af þeim bestu í ensku úrvalsdeildinni. Hann er enn ungur af knattspyrnustjóra að vera og þetta er í fyrsta sinn sem hann tekur þátt í Meistaradeildinni. Hann er að læra," sagði Kolo Touré við Guardian. „Ég sé Wenger í honum af því að hann er svo gáfaður. Hann veit hvernig á að tala við leikmenn og hvernig að ná því besta út úr þeim. Skoðið bara hvað hann hefur gert hér á stuttum tíma," sagði Kolo Touré og bætti við: „Þegar hann kom hingað var Liverpool ekki í góðum málum. Hann kom sterkur inn og reif liðið upp. Það er erfiðari að halda liðinu þar en hann er að læra og þetta tímabil þarf að fara inn í reynslubankann" sagði Kolo Touré. „Brendan er sanngjarn maður sem vinnur mikið og gefur alltaf hundrað prósent af sér á hverjum degi. Eins og Arsene þá er hann alltaf mættur á æfingarnar til þess að laga hluti. Þeir spila líka svipaðan bolta. Hann vill að við sendum alltaf boltann og að við höldum alltaf áfram að spila sem er mjög mikilvægt," sagði Kolo Touré.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Dagskráin: Níu klukkutíma NFL-veisla og Liverpool og Man. United í beinni Sport Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Tottenham vann tíu Chelsea-menn á Brúnni Lagði upp jöfnunarmark á sama tíma og hann missti markametið Andri Lucas skoraði tvö mörk í sigri á Hollywood-liðinu Arsenal vann og náði Manchester City að stigum Aston Villa - Manchester City 2-1 | Fyrstu töpuðu stig City í deildinni Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Nottingham Forest endaði taphrinuna „Manchester United er og hefur alltaf verið stærra heldur en einhver einstaklingur“ Conte þverneitar sögusögnum um samningsviðræður Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sjá meira