Lára Rúnars gefur út nýtt myndband 3. nóvember 2014 23:47
Lára Rúnarsdóttir gefur út nýtt lag og myndband. Lagið heitir Rósir og er af væntanlegri plötu Láru sem kemur út snemma á næsta ári. Fyrsta smáskífa plötunnar, Svefngengill, náði góðu gengi og setti tóninn fyrir það sem vænta má af komandi plötu. Textarnir eru að þessu sinni á íslensku og eru öll lög og textar eftir Láru Rúnarsdóttur. Upptökustjóri er Stefán Örn Gunnlaugsson sem einnig gefur út undir listamannanafninu Íkorni. Lára hefur starfað lengi í tónlist og gaf út sína fyrstu plötu árið 2003 þegar hún var aðeins tvítug. Síðan þá hefur hún gefið út þrjár til viðbótar og fimmta platan er á leiðinni. Á þeim plötum eru meðal annars að finna slagarana In Between og Beast. Gaman er að geta þess að Lára kemur úr sannri tónlistarfjölskyldu en faðir hennar er Rúnar Þórisson gítarleikari í Grafík. Systir hennar og mágur eru í hljómsveitinni Himbrimi sem var einnig að gefa út nýtt lag. Síðast en ekki síst er hún svo vel búin að eiga trommuleikarann í Pollapönk sem eiginmann. Hljómsveit Láru Rúnars skipa Arnar Þór Gíslason, Þorbjörn Sigurðsson, Birkir Rafn Gíslason og Guðni Finnsson. Lára Rúnars mun koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves á miðvikudagskvöldið í Norðurljósasal Hörpu og á sunnudagskvöldið á Gauknum.
Airwaves Harmageddon Video Skroll Harmageddon Mest lesið Er píkan óhrein? Harmageddon "Píkan mín er svo ljót" Harmageddon Högni sveipaður dulúð og þokka Harmageddon Þættir um sögu rokksins á X977 Harmageddon David Beckham samþykkir að koma fram í nýju tónlistarmyndbandi Harmageddon "Var þunnur í fimm ár“ Harmageddon BDSM - hjartnæm reynslusaga Harmageddon Rokkprófið - Jónsi vs. Ólöf Jara Harmageddon Davíð Oddsson tjáir sig um bankahrunið Harmageddon Vínilplatan snýr aftur Harmageddon