Fótbolti

Enrique: Suarez er ekki feitur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Luis Enrique, stjóri Barcelona, segir ekkert hæft í staðhæfingum að sóknarmaðurinn Luis Suarez sé of þungur.

Suarez er að taka út fjögurra mánaða bann eftir að hann beit Giorgio Chiellini, leikmann Ítalíu, á HM í sumar líkt og frægt er.

Hann spilaði þó æfingaleik með varaliði Barcelona á dögunum en eftir leikinn birtust vangaveltur í fjölmiðlum á Spáni um líkamsþyngd kappans.

„Er Suarez of þungur? Nei, það er bara þvaður í blöðunum. Líkamsþyngd hans er venjuleg, svona var hann í Liverpool líka.“

Suarez skoraði tvívegis þegar varalið Barcelona vann 6-0 sigur á U-19 landsliði Indónesíu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×