Treyja númer 16 hengd upp í rjáfur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. september 2014 11:30 Stojakovic í baráttunni við Devean George í leik sex í úrslitum Vesturdeildarinnar 2002. Vísir/AFP
NBA-liðið Sacramento Kings ætlar að leggja treyju númer 16 til hliðar til heiðurs Serbanum Peja Stojakovic. Sacramento tilkynnti í gær að treyja Stojakovic yrði hengd upp í rjáfur við hátíðlega athöfn þegar liðið mætir Oklahoma City Thunder 16. desember næstkomandi. Stojakovic bætist þar með í hóp Mitch Richmond (2), Vlade Divac (21) og Chris Webber (4) sem hefur einnig hlotnast þessi heiður. Stojakovic, Webber og Divac voru hluti af sterku liði Sacramento um aldamótin, en Kóngarnir komust í úrslit Vesturdeildarinnar 2002 þar sem þeir töpuðu fyrir Los Angeles Lakers í frægri rimmu. Sacramento valdi Stojakovic með 14. valrétti í nýliðavalinu 1996. Hann kom þó ekki til liðsins fyrr en tveimur árum seinna frá gríska liðinu POAK. Stojakovic lék með Sacramento til ársins 2006. Hann skoraði 18,3 stig og tók fimm fráköst að meðaltali í leik á átta tímabilum hjá liðinu. Hann var í þrígang valinn í stjörnulið Vesturdeildarinnar sem leikmaður Sacramento. Enginn leikmaður hefur skorað jafn margar þriggja stiga körfur (1070) í sögu Sacramento, en Stojakovic þykir með betri þriggja stiga skyttum sem hafa spilað í NBA-deildinni. Serbinn lauk ferlinum hjá Dallas Mavericks, þar sem hann varð NBA-meistari 2011.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira