Pabbi Arons Elís tryggði Víkingum síðast sigur á Fylki Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. ágúst 2014 16:00 Aron Elís Þrándarson hefur verið besti maður Víkings í sumar. vísir/vilhelm
Fylkir og Víkingur mætast í 15. umferð Pepsi-deildar karla í knattspyrnu í kvöld klukkan 19.15, en tveir leikir fara fram því Eyjamenn taka einnig á móti FH klukkan 17.00. Víkingar völtuðu yfir Fylkismenn, 5-1, þegar liðin mættust síðast í bikarnum, en Árbæingar unnu fyrri leik liðanna í Pepsi-deildinni, 2-1. Það átti ekki að koma neinum á óvart því Fylki gengur yfirleitt mjög vel með Víkinga þegar liðin mætast í efstu deild. Árbæingar eru búnir að vinna níu úrvalsdeildarleiki í röð gegn Víkingum. Síðast vann Víkingur leik gegn Fylki í efstu deild 11. september 1993, eða fyrir 21 ári síðan. Tomasz Jaworek og MarteinnGuðgeirsson skoruðu þá mörk Víkinga í 2-1 sigri í Árbænum, en mark Fylkis skoraði BjörnEinarsson sem er í dag formaður Víkings. Síðan þá hafa Fylkismenn unnið allar viðureignir liðanna í efstu deild. Þeir Appelsínu gulu unnu báða leikina 2004, 2006, 2007, 2011 og svo fyrri leik liðanna í Pepsi-deildinni í sumar sem fyrr segir. Ef teknir eru með leikir í 1. deild eru Fylkismenn búnir að vinna tíu í röð og tólf af síðustu þrettán, en síðasti sigur Víkings á Fylki á Íslandsmótinu var í 1. deildinni sumarið 1997. Þá vann Víkingur 1-0 sigur í Víkinni með marki ÞrándarSigurðssonar, föður Arons Elís Þrándarsonar, skærustu stjörnu Víkingsliðsins í dag. Þarna var Aron Elís á þriðja aldursári. Nú er bara spurning hvort hann feti í fótspor föður síns og komi Víkingum aftur á sigurbraut gegn Fylki á Íslandsmótinu.Síðustu níu leikir Fylkis og Víkings í efstu deild:2004: Fylkir - Víkingur 2-1 Víkingur - Fylkir 1-32006: Víkingur - Fylkir 0-2 Fylkir - Víkingur 1-02007: Víkingur - Fylkir 0-1 Fylkir - Víkingur 1-02011: Víkingur - Fylkir 1-3 Fylkir - Víkingur 2-12013: Víkingur - Fylkir 1-2
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Enski boltinn „Að tala sig inn á þessa niðurstöðu finnst mér ótrúlegt“ Handbolti „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ Íslenski boltinn Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn Íslenski boltinn „Ég má ekki segja leyndarmál“ Körfubolti Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ Íslenski boltinn Lést í miðjum leik Fótbolti „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Ensk stórlið, Stólar í Garðabæ og Besta deild kvenna Sport „Einvígið fer ekki á einum manni“ Handbolti Fleiri fréttir Með Vestra í Evrópu: „Engin þjálfarastaða sambærileg þessari“ „Ég er náttúrulega á allt öðrum stað“ „Það er ekkert annað en metnaðarleysi“ „Ég ætla að nýta það og sýna hvað í mér býr“ Jasmín Erla: „Mér fannst við bara helvíti góðar“ Ellefu mörk í Mosfellsbænum Uppgjör: Víkingur R. - Stjarnan 2-1 | Draumabyrjun Víkings Flest mörk í 67 ár Uppgjörið: Breiðablik - Þróttur R. 2-0 | Íslandsmeistararnir reyndust of stór biti Unglingalandsliðsmaður frá Bodö/Glimt til ÍBV Skiptir sér af öllu og öllum en slær ekki í gegn „Ef hann er ekki með þá fer allt til fjandans“ Besta-spá kvenna 2026: Baráttan um þann stóra Hávær öskur þjálfaranna heyrðust vel: „Þú sérð það sjálfur!“ Sló met Eiðs Smára Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Sjá meira