Lekamálið snýst um okkur Guðmundur Andri Thorsson skrifar 11. ágúst 2014 08:38 Lekamálið snýst ekki um að undarlegt sé að sumir hælisleitendur séu með fölsuð skilríki eins og skilja má á Brynjari Níelssyni. Það snýst hugsanlega um samsæri embættismanna og fjölmiðla eins og bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum lætur að liggja - nema samsærið beinist ekki gegn Hönnu Birnu heldur gegn Tony Omos. Málið snýst ekki um hótanir í garð Hönnu Birnu, jafn hörmulegar og þær hljóta að vera fyrir hana og hennar nánustu. Það snýst varla um Tony Omos. Það snýst um stjórnsýslu, meðferð trúnaðarupplýsinga, sannsögli gagnvart þingi og þjóð, trúverðugleika stjórnmálamanna. Það snýst um Hönnu Birnu og hennar fólk. Það snýst um okkur: til hvers við ætlumst af stjórnmálamönnum okkar og hvað við umberum þeim.Lekandinn Tony Omos leitaði hér hælis. Hann átti von á barni með konu sem einnig beið úrskurðar um landvistarleyfi. Umsókn hans var hafnað og eftir að hafa verið í felum um hríð gaf hann sig fram og stóð til að vísa honum úr landi. Boðað var til mótmæla við innanríkisráðuneytið vegna málsins. Brugðist var við því með því að reyna að sýna almenningi fram á að Tony þessi ætti ekki skilið landvist, hann væri grunaður um glæpsamlegt athæfi og hefði sýnt fjöllyndi í ástum. Tekið var saman af embættismönnum "óformlegt minnisblað" í ráðuneytinu um mál Tonys sem ráðuneytisstjóri, ráðherra og aðstoðarmenn ráðherra fengu að sjá, en slík plögg eru trúnaðargögn. Annar aðstoðarmaðurinn, Gísli Freyr Valdórsson, var í samskiptum við blaðamenn daginn áður en efni þessa minnisblaðs birtist - með viðbættum vangaveltum um að Tony væri hugsanlega ekki faðir þess barns sem fyrrgreind kona gekk með, og hefði beitt hana þrýstingi til að segja svo vera. Seinna kom á daginn að þetta átti ekki við rök að styðjast. Gísli hafði sama dag og hann talaði við blaðamenn vistað minnisblaðið í tölvu sinni, eins og maður gerir þegar maður opnar skjal og breytir því. Hann neitar því að hafa átt við skjalið. En er þetta ekki harður heimur? Og er landið ekki í umsátri glæpamanna sem hér vilja setjast að og stunda sína iðju? Og þarf ekki að verjast þeim með öllum meðulum, jafnvel þó að stundum séu á gráu svæði? Á ekki almenningur heimtingu á að vita hvers konar fólk það er sem hér leitar hælis? Svona kunna sumir að hugsa. Sjálfur veit ég ekkert um Tony Omos en við höfum ekkert leyfi til þess að ganga út frá því sem vísu að hann sé illmenni og glæpamaður. Þvert á móti: sérhver manneskja sem á vegi okkar verður á heimtingu á því að vera talin húsum hæf þar til annað kemur í ljós. Og raunar hefur ekkert komið fram um Tony Omos annað en að hann virðist hafa verið nokkuð kvensamur. En við vitum líka hitt: Fyrir tilverknað lekandans var birt í fjölmiðlum nafn íslenskrar konu sem átt hafði í sambandi við Tony, og nafn barnsmóður Tonys er svert í leiðinni í þessari viðleitni við að snúa almenningsálitinu gegn Tony Omos. Farið er inn á svæði í lífi fólks sem við teljum til einkalífs. Sú iðja ein sýnir okkur viðhorf til upplýsinga og til fólks sem eiga ekki heima í opinberri þjónustu. Meðal þess sem við ímyndum okkur að sé gott við að búa hér á landi er að geta treyst því að stjórnsýsla lúti almennum reglum og fari fram með ákveðinni festu. Við eigum öll mikið undir því að svo sé. Með því að senda viðkvæmar trúnaðarupplýsingar til blaða - og bæta slaðri við þær án þess að aðgreina það frá skrifi sómakærra embættismanna í ráðuneytinu - brýtur lekandinn gegn réttum stjórnsýsluháttum. Þetta sýnir skeytingarleysi gagnvart einkalífi annarra, virðingarleysi fyrir lögum og reglum, sem fremur má vænta í alræðisríkjum en réttarríki, dómgreindarleysi, reynsluleysi, skort á mannúð og skort á pólitískum klókindum.Fer þetta ekki að koma? Hanna Birna leyfði málinu að vaxa og vaxa án þess að bregðast við - og enn þráast hún við að grípa til aðgerða, sem sýnir að hún virðist enn ekki átta sig á alvöru málsins þó að afleiðingar þess fyrir hana séu hægt og rólega að renna upp fyrir henni. Hún hlýtur að hafa hlustað á vonda ráðgjafa. Hún gerði illt verra þegar hún staðhæfði á alþingi að ekkert sambærilegt plagg við það sem birtist í fjölmiðlum hefði verið til í ráðuneytinu á þeim tíma: það var beinlínis ósatt. Og versnaði enn í því þegar hún reyndi að láta liggja að því, gegn betri vitund, að plaggið gæti hafa ratað í fjölmiðla frá Rauða krossinum. Þegar ráðherra er staðinn að því hafa sagt þinginu ósatt - og reyna að koma sök yfir á mannúðarsamtök - þá hljótum við að spyrja í hvert sinn sem viðkomandi tekur til máls: Er hún að skrökva að okkur aftur? Við getum ekki búið við slíkt í lýðræðisríki. Við verðum að ætlast til þess að stjórnmálamenn segi satt. Og við getum heldur ekki búið við það í réttarríki að ráðherra ræði ítrekað við undirmann sinn, lögreglustjórann í Reykjavík um rannsókn sem beinist að ráðherranum og hennar fólki. Sá lögreglustjóri sagði af sér - og er eini maðurinn sem enn hefur sagt af sér eftir að lekamálið kom upp. Hanna Birna skipaði nýjan lögreglustjóra sem stýrir þá rannsókn á þeim ráðherra sem viðkomandi á starf sitt að þakka, og hringir væntanlega af og til, svona bara rétt að spjalla - óformlega. Davíð og hans menn hafa slegið skjaldborg um Hönnu Birnu, sem kann að skýra þá hörmulegu ráðgjöf sem hún virðist hafa fengið í öllu málinu en formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, kom fram með óvenju hulduhrútslega yfirlýsingu um að ráðherrar nytu trausts á meðan þeir nytu trausts og væru ráðherrar meðan þeir væru ráðherrar - hafi ég skilið hann rétt, sem ég gerði sennilega ekki. Ráðleysi virðist ríkja en við bíðum þess að vita hvað umboðsmaður alþingis og ríkissaksóknari gera. Allt verður þetta mál vonandi til þess að reglur um hæfi ráðherra til setu og afskipta verði gerðar skýrari. Lekamálið snýst um okkur: að kerfið virki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Andri Thorsson Lekamálið Mest lesið Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Sjá meira
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun
Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson Skoðun