Skoðun

Ég valdi Garðabæ!

Björn Þorfinnsson skrifar
Fyrir rúmu ári síðan flutti ég með fjölskyldu mína í Garðabæ. Ég valdi Garðabæ vegna þess að hér taldi ég kjörinn stað til að skjóta rótum og það umhverfi sem Garðabær hefðu uppá að bjóða væri það besta sem fyrir fyndist. Hér er falleg náttúra, öflugt íþróttastarf, virk félagasamtök, góðir skólar og ábyrg fjármálastjórn. Ég hafði ekki tekið þátt í pólitísku starfi af krafti áður en lét slag standa þegar leitað var til mín um sæti á lista Framsóknar fyrir kosningarnar á laugardaginn. Ég vildi hafa áhrif og taldi að hér gæfist kjörið tækifæri til að kynnast málum bæjarins betur og leggja mitt lóð á vogaskálarnar fyrir betri Garðabæ.

Hér þarf að huga að framtíðinni. Hvernig bærinn okkar mun líta út eftir 10-20 ár, hvernig er íbúamynstrið til langs tíma og hver eru sóknarfærin til að laða að nýja íbúa í bæinn. Hvar væri ákjósanlegast að byggja upp og hvernig byggð hentar best ?  Garðaholtið er kjörinn staður til að mynda nýja byggð, byggð til framtíðar sem kemur til móts við þarfir allra aldurs- og samfélagshópa. Framsókn hefur það á sinni stefnuskrá að strax eftir kosningar verði farið í hönnunarsamkeppni um nýtt skipulag á Garðaholti. Þar væri kjörið að myndi rísa 3-4000 íbúa byggð. Byggingarlandið er kjörið og í eigu bæjarins. Ný byggð þarna myndi tengja bæjarhlutana saman, laða til sín nýja íbúa og gefa ungu fólki tækifæri til að kaupa sína fyrstu eign.

Samgöngur virðast líka á nokkrum stöðum ganga frekar brösuglega fyrir sig. Umferðahnútar sem enginn virðist vilja leysa leynast á nokkrum stöðum. Á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar er allt í hnút. Ég hef lesið mig til um nokkrar tillögur sem lagðar hafa verið fram um þessi gatnamót. En samt virðast sem engin lausn sé í sjónmáli. Hér þarf að setjast strax niður með Vegagerðinni finna lausn og koma síðan inn á samgönguáætlun .  En ekki eru allir á bíl, æ fleiri ganga og hjóla. Stígakerfið má bæta og tengingar við úthverfin og strætósamgöngur almennt innanbæjar þarf að setja í forgang svo strætó verði raunverulegur ferðamáti innan Garðabæjar.

Kæri Garðbæingur. Ég sé ekki eftir því að hafa tekið sæti á listanum. Með mér á listanum er öflugt fólk sem er fullt af eldmóði í að vinna fyrir Garðbæinga. Við óskum eftir atkvæði þínu svo rödd okkar muni heyrast næstu fjögur árin og framtíðarbærinn Garðabær verði ákjósanlegur kostur fyrir íbúana og þá sem hingað vilja koma eins og ég.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×