City fékk þunga refsingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 16. maí 2014 19:48 Manchester City varð nýlega Englandsmeistari í knattspyrnu. Vísir/Getty
Manchester City má aðeins tilnefna 21 leikmann í leikmannahóp liðsins í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. City var einnig sektað um 9,2 milljarða króna fyrir að brjóta reglur UEFA, Knattspyrnusambands Evrópu, um fjárhagslegan rekstur knattspyrnufélaga. City eru einnig settar skorður á leikmannamarkaðnum í sumar en félagið má aðeins eyða 9,2 milljörðum (49 milljónum punda) í nýja leikmenn auk þeirra tekna sem félagið aflar sér með sölu leikmanna. Þar að auki er félaginu óheimilt að hækka launakostnað á næsta tímabili. Alls brutu níu félög í Evrópu áðurnefndar reglur UEFA. Meðal annarra félaga sem var refsað var PSG í Frakklandi en félagið fékk svipaða refsingu og City. City birti yfirlýsingu þar sem fram kom að félagið hafi hvort eð er aðeins notað 21 leikmann í Meistaradeildinni á þessari leiktíð og hafi ekki gert ráð fyrir því að eyða meira en 49 milljónum punda í leikmenn í sumar. Þar að auki býst félagið ekki við því að launakostnaður muni hækka. Enn fremur kemur fram að forráðamenn félagsins greini á um túlkun á reglum UEFA varðandi kaup félagsins á leikmönnum fyrir árið 2010. „Félagið telur að það hafi farið eftir öllum settum reglum,“ sagði í yfirlýsingunni. Ef City fer eftir reglum UEFA á næsta keppnistímbili verður hluti sektarinnar, um 6,2 milljarðar, endurgreidd. Meðal annarra félaga sem var refsað voru Galatasaray frá Tyrklandi og rússnesku félögin Zenit og Anzhi. Öll hafa eytt mun hærri fjárhæðum síðustu ár en þau hafa aflað sér. Síðastnefnda félagið féll úr rússnesku úrvalsdeildinni fyrr í vikunni.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Áhorfendum vísað út af Anfield Enski boltinn „Mikið í gangi sem enginn veit af“ Formúla 1 Risaskjár og stuðsvæði á Íslandsmótinu í golfi Golf Kærastinn kemur til varnar: „Allir glíma við sín vandamál“ Sport Barist um undirskrift Nunez Enski boltinn Í beinni: Valur - Breiðablik | Stórleikur á Hlíðarenda Íslenski boltinn Gott silfur gulli betra en hvað nú? Enski boltinn Fékk annað gult fyrir að keyra inn í Mikael og lét dómarann heyra það Fótbolti Sjáðu umdeilda vítadóminn og sigurmarkið sem var dæmt af Íslenski boltinn „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Við erum Newcastle United“ Everton að ganga frá kaupum á miðjumanni Chelsea Áhorfendum vísað út af Anfield Barist um undirskrift Nunez „Augljóslega þurfum við fleiri leikmenn“ Gott silfur gulli betra en hvað nú? Hato mættur á Brúnna Palhinha mættur til Lundúna á ný eftir stutt stopp hjá Bayern Vill vera hjá Man United næstu tvo áratugina Maddison meiddist aftur og „þetta lítur ekki vel út“ Sjáðu tilfinningaþrungna kveðjustund Son United tilbúið að tapa miklu á Højlund Fær ekki nýjan samning eftir fótbrotið Þessir þurfa að heilla Amorim Kom ekkert annað til greina en West Ham hjá Wilson Ramsdale mættur til Newcastle Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Newcastle býður í Sesko Son spilar sinn síðasta leik fyrir Tottenham á morgun „Erfið og flókin staða“ „Úrvalsdeildarliðum verður ekki fækkað niður í 18“ Er Donnarumma svarið frekar en nýr framherji? Reynsluboltinn Coady til liðs við Hollywood-lið Wrexham Liverpool tilbúið að hætta eltingaleiknum við Isak Newcastle hafnar tilboði Liverpool Sagðir vilja borga helminginn fyrir Isak í ár og hinn helminginn ári síðar Netverslun Liverpool hrundi vegna álags Er Liverpool að styrkja rangan enda vallarins? Paquetá hreinsaður af ásökunum um veðmálasvindl Nýju leikmenn Liverpool komnir með númer Sjá meira