Cosmos: A Spacetime Odyssey byrjuðu í gær Andri Þór Sturluson skrifar 10. mars 2014 11:52 Neil deGrasse Tyson og eitthvað æðislega töff.
Í gær var frumsýndur fyrsti þáttur hinnar nýju Cosmos seríu með stjarneðlisfræðingnum Neil deGrasse Tyson. Þættirnir sem bera heitið Cosmos: A Spacetime Odyssey eru framhald hinna vinsælu þátta Carl Sagan, Cosmos: A personal Voyage sem gerðir voru 1980, nutu mikilla vinsælda og voru innblástur margra inn í vísindin. Í fyrsta þættinum fer Tyson með áhorfendum í stutta kynningarferð um sólkerfið á ímynduðu geimskipi, sýnir okkur alheimsdagatalið og hvað maðurinn var ruglaður (sumir eru það enn) að halda að heimurinn væri skapaður fyrir hann. Nýju þættirnir hefðu varla orðið að veruleika ef ekki hefði verið fyrir Seth MacFarlane, höfund Family Guy, sem framleiðir þættina. En Seth sagði sjálfur: „I'm at a point in my career where I have some disposable income ... and I’d like to spend it on something worthwhile.“ Fyrsti þátturinn af Spacetime Odyssey fylgir hér með af Youtube. Hann verður varla lengi þar.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Elsta systkinið mest óþolandi Harmageddon Gítarstef Whole Lotta Love valið það besta í sögunni Harmageddon "Ríkisstjórnin á að segja af sér“ Harmageddon Ný plata frá Deftones í ár Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Royal Blood með þriðja lag sitt á toppi Pepsi Max listans Harmageddon Aðeins einn frambjóðandi með X 977 húðflúr Harmageddon Haukur skoðar heiminn: „Vona að þeir hafni mér ekki“ Harmageddon Gamalt lag með Dave Grohl komið í leitirnar Harmageddon Davíð Oddsson skilur ekki þróunarkenninguna Harmageddon