Körfubolti

Jackson íhugar að vinna fyrir NY Knicks

Jackson liggur undir feldi.
Jackson liggur undir feldi. vísir/getty
Sigursælasti þjálfari í sögu NBA-deildarinnar, Phil Jackson, er hugsanlega á leið í deildina aftur. NY Knicks er væntanlegur áfangastaður.

Jackson, sem er fyrrum leikmaður félagsins, hefur þegar hafnað tilboði um að þjálfa liðið en hann er að íhuga mjög alvarlega að koma inn á skrifstofuna og skipta sér af málum utan vallar.

Ekki er enn búið að útfæra nákvæmlega hvernig starfið hans verður. Hann er sagður ætla að gefa Knicks svar í vikunni.

Jackson myndi þó vera hugsuðurinn á bak við liðið. Ákveða hvaða leikmenn kæmu til félagsins og hverjir færu.

Jackson vann ellefu NBA-titla á þjálfaraferli sínum með Chicago Bulls og LA Lakers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×