Körfubolti

Jordan: Phil Jackson mun standa sig hjá Knicks

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Phil Jackson verður maðurinn á bakvið tjöldin hjá New York Knicks.
Phil Jackson verður maðurinn á bakvið tjöldin hjá New York Knicks. Vísir/EPA
Phil Jackson, sigursælasti þjálfarinn í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta, verður kynntur sem nýr forseti New York Knicks í dag en hann verður æðsti maður hjá félaginu og sér um daglegan rekstur liðsins.

Fram kemur á vef ESPN að Jackson hafi verið í viðræðum við Knicks í marga mánuði en hann hefur lengi langað til að vinna á bakvið tjöldin hjá NBA-liði eftir áratugi á parketinu.

Jackson, sem vann sex meistaratitla sem þjálfari Chicago Bulls og fimm sem þjálfari Los Angeles Lakers, varð einnig meistari í tvígang sem leikmaður New York Knicks árin 1970 og 1973.

Liðið hefur ekki unnið NBA-deildina síðan þá en Jackson bíður erfitt og vandasamt verkefni að koma New York-liðinu aftur á toppinn eftir mörg erfið ár þar í borg.

„Phil getur gert góða hluti með liðið því hann er einstakur. Hann er frábær að hafa stjórn á stórstjörnum með mikið egó og fá alla til að róa í sömu átt,“ segir MichaelJordan við ESPN um sinn gamla lærimeistara.

„Phil er frábær. Hann er mjög gáfaður og verður fljótur að komast að því hvað hann þarf að gera. Hann á líka marga vini í deildinni, eins og mig, sem verða alltaf tilbúnir að hjálpa honum.“

„Eina vandamálið er að enginn af okkur mun hjálpa honum með því að gefa eftir góða leikmenn eða valrétti í nýliðavalinu. Það er sá hluti starfsins sem er erfiðastur. En ég óska honum velgengni. Ég hef trú á honum og veit að hvað sem hann tekur sér fyrir hendur mun ganga upp á endanum,“ segir Michael Jordan.

Michael Jordan trúir á sinn mann.Vísir/EPA
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×