Sannleikurinn: Vinsælustu folunum oftast skilað Snær Blær skrifar 8. janúar 2014 19:36 Konur eru duglegar við að flokka og skila þekktum fjölmiðlamönnum.
Það er ekki bara vinsælum jólabókum skilað. Konur eru líka duglegar við að losa sig við karlmenn og skila þeim. Ritstjóri Séð og Heyrt, sem við munum ekki hvað heitir því Birtingur er alltaf að reka fólk, segir að vinsælustu folarnir séu einnig þeir sem oftast var skilað. „Það er ekkert óeðlilegt að þessum mönnum hafi oftast verið skilað á árinu sem var að líða. Þegar menn eru vinsælir er oftast gott aðgengi að þeim. Konur geta einfaldlega fengið þá lánaða þangað til þær eru búnar með þá en af því að það er svo auðvelt að fá þá lánaða vill engin eiga þá.“ Sölva Tryggvasyni, Ágústi Bent, Charlie Sheen, Villa naglbít og Sverri Bergmann var oftast skilað en hjartaknúsararnir eru vanalega ekki lengi að finna sér nýjar kærustur til að hætta með sér.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem hún mun hætta með fljótlega.
Harmageddon Mest lesið Skiptir máli að kalla sig femínista? Harmageddon Mega konur hafa fantasíur? Harmageddon 10 ráð til að eiga ánægjulegra kynlíf Harmageddon Hljómsveitt frumsýnir Næs í rassinn Harmageddon Lítil virðing borin fyrir kvenkyns hljóðfæraleikurum Harmageddon "Það eru ekki allar stelpur svo heppnar að fæðast með píku" Harmageddon #FreeTheNipple er byltingarkennt af mörgum ástæðum Harmageddon "Píkan mín er svo ljót" Harmageddon Er píkan óhrein? Harmageddon BDSM - hjartnæm reynslusaga Harmageddon