Skoðun

Styðjum Samfylkinguna

Rannveig Guðmundsdóttir skrifar
Við sem á sínum tíma lögðum saman kraftana í Alþýðuflokk, í Alþýðubandalagi og Kvennalista vorum svo bjartsýn á að við værum að breyta stjórnmálunum til góðs. Að saman yrðum við sterk. Okkar flokkur væri bara bundinn einum hagsmunahópi, það er fjölskyldunum í landinu. Það var framtíðarsýn okkar að Samfylkingin myndi alltaf setja heimilin í forgang. Hugmyndafræði jafnaðarmanna er engu síður hugsjón en pólitík. Stóra baráttumál Samfylkingarinnar er alltaf að tryggja öllum vinnu og fjölskyldum af öllu tagi félagslega réttlátt umhverfi og skapa þannig öflugt öryggisnet um uppvaxtarskilyrði allra barna. Þess vegna hefur það verið stór þáttur í framtíðarsýn jafnaðarmanna að gera allt sem hægt er til að tryggja stöðugleika og komast út úr því efnahagsumhverfi sem hefur skapað svo mikla erfiðleika fyrir heimilin gegnum tíðina. Miðað við þessi grundvallarstefnumið var það rétt frá okkar sjónarhóli að leiða ríkisstjórn eftir hrunið þó allir vissu að það yrði óhemju erfitt og örugglega hrikalega vanþakklátt. Samfylkingin setti sér það markmið að vinna að endurreisninni með hagsmuni heimilanna í algjörum forgangi og að dreifa byrðum þannig að þeir sem minnst hefðu væru varðir. Það má vera að Samfylkingin hafi ekki gert allt eins og okkar fólki líkaði og að betur hafi mátt gera en það er alveg ljóst að Samfylkingin hefur gert eins vel og henni fannst unnt á þessum erfiða tíma.



Nú eru þáttaskil. Kosningar framundan og kjörtímabil gert upp. Aldrei hafa fleiri framboð komið fram og eitt eiga þau öll sameiginlegt. Þau segja öll: “nú get ég“. Nú er hægt að bjóða gull og græna skóga. Og gera allt sem allir þrá eftir aðeins fjögur ár frá því við lentum í hyldýpinu. Í sjálfu sér er það mikil viðurkenning fyrir stjórnarflokkana og ekki síst fyrir Samfylkinguna burðarflokkinn í ríkisstjórninni. En kjósendur okkar eru ekki allir með okkur. En það er núna sem jafnaðarmenn þurfa að standa saman. Samfylkingin þarf stuðning núna. Þess vegna hvet ég ykkur öll sem eruð með stóra jafnaðarmannahjartað. Stöndum nú saman. Við sem höfum sömu lífsýn. Ekki afhenda uppskeruna af erfiðleikum liðins kjörtímabils til flokka sem við vitum að hafa aldrei haft þennan jöfnuð að leiðarljósi. Látum hjartað ráða og kjósum Samfylkinguna.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×