Bayern með nýtt met - 37 leikir í röð án taps Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. nóvember 2013 16:33 Thomas Müller byrjaði á bekknum en kom inná og skoraði síðasta markið. Hér fagnar hann fyrsta markinu með félögum sínum. Mynd/NordicPhotos/Getty
Bayern München setti nýtt met í þýsku úrvalsdeildinni í dag þegar liðið vann 3-0 heimasigur á Augsburg í 12. umferð deildarinnar en auk þess náðu Bæjarar fjögurra stiga forskoti á toppnum því á sama tíma tapaði Dortmund sínum leik. Bayern München jafnaði 30 ára gamalt met Hamburger SV um síðustu helgi með því að spila sinn 36. leik í röð án þess að tapa en á Bæjarar eiga nú metið einir, 37 leiki í röð í þýsku úrvalsdeildinni án þess að tapa. Jérôme Boateng kom Bayern í 1-0 á 4. mínútu og Franck Ribéry bætti við öðru marki á 42. mínútu. Thomas Müller innsiglaði síðan sigurinn með marki úr vítaspyrnu á fimmtu mínútu í uppbótartíma. Marco Reus kom Dortmund í 1-0 á útivelli á móti Wolfsburg en Ricardo Rodríguez og Króatinn Ivica Olić tryggðu Wolfsburg 2-1 sigur. Wolfsburg-liðið er komið upp í 4. sæti eftir sigurinn en Bayer 04 Leverkusen er í 3. sæti eftir 5-3 sigur á Hamburg. Suður-Kóreumaðurinn Heung-Min Son skoraði þrennu fyrir Leverkusen en hin mörkin skoruðu þeir Stefan Kiessling og Gonzalo Castro.Úrslitin í þýsku úrvalsdeildinni í dag: 1899 Hoffenheim - Hertha Berlin 2-3 Bayer 04 Leverkusen - Hamburg 5-3 Bayern München - Augsburg 3-0 Schalke 04 - Werder Bremen 3-1 Wolfsburg - Borussia Dortmund 2-1
Þýski boltinn Mest lesið Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Fótbolti Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Fótbolti Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Fótbolti „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Íslenski boltinn Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Fótbolti Hótar að mæta aldrei aftur eftir „sorglega gagnrýni“ Sport Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Handbolti Leiðtoginn Sigvaldi fer til Þýskalands Handbolti „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Fleiri fréttir „Hann var eins og spenntur krakki í leikfangabúð“ Gylfi í hópnum sem mætir Kanada og Haítí Svona var fundurinn þegar Arnar kynnti vesturfara Glósublað Rosenior og meira fíaskó: „Fáránlegur leikþáttur“ Farsinn framlengist: Senegal áfrýjar til Alþjóðadómstólsins Sjáðu bombuna sem Gummi Ben missti sig yfir og fyrsta rauða á ferlinum Ísland spilar í Tókýó í sumar „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Schmeichel um áfall sonarins: „Vil ekki að þetta endi svona“ Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið Sjá meira