Bendtner kláraði næstum því Ítala á Parken Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. október 2013 20:08 Nicklas Bendtner fagnar fyrra marki sínu. Mynd/NordicPhotos/Getty
Nicklas Bendtner snéri aftur í danska landsliðið og skoraði bæði mörk liðsins í 2-2 jafntefli á móti Ítölum á Parken í undankeppni HM 2014 í í kvöld. Sigur hefði komið Dönum upp í annað sæti riðilsins en Ítalir höfðu þegar tryggt sér efsta sætið og farseðil til Brasilíu næsta sumar. Það stefndi allt í 2-1 sigur Dana þegar Ítalir náðu að tryggja sér 2-2 jafntefli með jöfnunarmarki í uppbótartíma leiksins. Búlgarar eru þar með áfram í 2. sætinu á betri markatölu en Danir. Búlgarar töpuðu fyrr í dag á móti Armeníu en Armenar og Tékkar unnu sína leiki og eru aðeins einu stigi á eftir Búlgaríu og Danmörku. Leikurinn byrjaði þó ekki vel fyrir Dani því Pablo Osvaldo, framherji Southampton, kom Ítalíu í 1-0 á 28. mínútu eftir sendingu frá Thiago Motta. Nicklas Bendtner jafnaði hinsvegar leikinn í uppbótartíma fyrri hálfleiks eftir að hafa fengið sendingu frá Michael Krohn-Dehli. Þeir félagar voru síðan aftur á ferðinni á 79. mínútu leiksins þegar Bendtner skoraði eftir sendingu frá Krohn-Dehli. Það leit allt út fyrir að það yrði sigurmarkið en Alberto Aquilani, fyrrum leikmaður Liverpool, jafnaði metin á 91. mínútu eftir sendingu frá fyrrnefndum Osvaldo.
Fótbolti Íslenski boltinn HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki PSG - Barcelona | Tvö af bestu liðum Evrópu mætast Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Sjá meira