Körfubolti

Grindavík vann Hauka eftir tvíframlengdan leik

Þorleifur Ólafsson
Þorleifur Ólafsson mynd/ daníel
Grindavík vann magnaðan sigur, 104-102,  á nýliðum Hauka í Dominos-deild karla í körfubolta en framlengja þurfti leikinn í tvígang.

Staðan eftir venjulegan leiktíma var 87-87 og því þurfi að framlengja en Grindvíkingar rétt náðu að jafna metin undir lok leiktímans.

Eftir fyrri framlenginguna var staðan aftur jöfn 91-91 en Íslandsmeistararnir voru sterkari í annarri framlengingu og unnu að lokum sigur 104-102.

Þorleifur Ólafsson skoraði 27 stig fyrir Grindavíkinga í kvöld og  Sigurður Þorsteinsson 23. Terrence Watson var frábær í liði Hauka og skoraði 32 stig.  Haukur Óskarsson átti einnig stórleik og var með 31 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×