Rooney pirraður á spurningum blaðamanns Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 18. september 2013 13:00 Rooney var á skotskónum á Old Trafford í gærkvöldi. Nordicphotos/AFP „
Heyrðu, ég er bara að einbeita mér að fótboltanum eins og ég hef gert í allt sumar,“ sagði Wayne Rooney eftir sigurinn á Bayer Leverkusen í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi.Rooney skoraði tvö mörk og spurði blaðamaður hann að því hvort hann væri orðinn hamingjusamur hjá United á nýjan leik. „Ég hef lagt hart að mér til að vera klár fyrir tímabilið. Ég er hæstánægður með að vera kominn í eldlínuna og að skora mörk.“ Blaðamaðurinn gekk á enska landsliðsmanninn og spurði hann hvort hann hefði óskað eftir sölu frá United í sumar. Rooney vildi ekki svara spurningunni. „Ég var að segja þér að ég er að einbeita mér að fótboltanum eins og ég hef gert í allt sumar,“ sagði Rooney. Hann þakkaði stuðningsinn frá aðdáendum United. „Stuðningsmennirnir hafa alltaf verið frábærir og móttökurnar hafa alltaf verið góðar,“ sagði Rooney. Aðspurður hvort höfuðbandið sem Rooney hefur notað í tveimur síðustu leikjum gæfi honum lukku brosti hann út í annað. „Það er ekki eins og ég vilji vera með höfuðbandið en ég gæti varla spilað án þess. Það kemur mér á völlinn sem skiptir mestu máli.“Rooney er nú einn fjögurra leikmanna United sem hafa skorað 200 mörk eða fleiri fyrir United. Sir Bobby Charlton 249 mörk Denis Law 237 mörk Jack Rowley 211 mörk Wayne Rooney 200 mörk
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Tók boltann með höndum og kostaði Arsenal tvö stig Fótbolti Fleiri fréttir Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Sjá meira