Bayern í sögubækurnar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 1. júní 2013 19:57 Nordic Photos / Getty Images
Bayern er þýskur bikarmeistari eftir 3-2 sigur gegn Stuttgart í úrslitaleiknum í Berlín í kvöld. Bayern komst í 3-0 forystu í leiknum og virtist ætla að sigla öruggum sigri í höfn. En þá vöknuðu leikmenn Stuttgart til lífsins og hleyptu mikilli spennu í lokamínúturnar með tveimur mörkum. Thomas Müller kom Bayern yfir með marki úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og forystan jókst í 3-0 með tveimur mörkum Mario Gomez snemma í síðari hálfleik. Bæði mörkin skoraði hann af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá hægri. Martin Harnik svaraði svo fyrir Stuttgart með tveimur mörkum. Fyrst með föstum skalla á 71. mínútu og svo með skoti úr vítateignum eftir þunga sókn níu mínútum síðar. Leikmenn Stuttgart reyndu hvað þeir gátu til að skora jöfnunarmarkið en allt kom fyrir ekki. Bayern vann því þrefalt þetta árið því liðið varð einnig þýskur meistari sem og Evrópumeistari. Þetta er í fyrsta sinn sem þýskt lið afrekar að vinna þessa þrennu. Sex lið höfðu afrekað að verða Evrópumeistari sem og deildar- og bikarmeistari í sínu landi sama tímabilið. Bayern bætist nú í þann hóp. Sögulegt ár hjá Bayern og mögnuð kveðjustund fyrir þjálfarann Jupp Heynckes sem víkur í lok tímabilsins fyrir Pep Guardiola.
Þýski boltinn Mest lesið Harmur Egypta gæti orðið Íslendingum til happs Handbolti Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Enski boltinn „Það hjálpar ekki neitt“ Handbolti Króatísk goðsögn segir Dag og Cindric hafa lent í rifrildi Handbolti Setti Íslandsmet í klassískri bekkpressu í gær Sport Spjót beinast að Degi sem segir orðróm um rifrildi rangan Handbolti Gætið ykkar: Nýi Balic sem fékk ekki númerið hans Arons Handbolti Strákarnir okkar gætu verið ofar og neðar en Slóvenar á sama tíma Handbolti Hitað upp í Zagreb fyrir risaleik við Slóvena Handbolti HM í dag: Yfirdýnur á leið til strákanna okkar Handbolti Fleiri fréttir Arnar fer með Ísland til Skotlands Sölvi tekinn við Víkingum með Viktor og Aron til aðstoðar Seldu treyjur Orra á uppboði fyrir fjölskyldu Maciej Elísabet tekin við Belgum Svona hjálpaði Sara fótboltakonum að geta valið bæði fjölskyldu og fótbolta Fowler með sína kenningu um þá samningslausu hjá Liverpool Rotta hljóp um á grasinu á Old Trafford í miðjum leik Neymar á heimleið? „Við erum mögulega lélegasta lið í sögu Manchester United“ Real Madrid á toppinn eftir þægilegan sigur Bjarki Steinn í fyrsta sinn í byrjunarliði Venezia Áttundi sigur Forest í síðustu níu leikjum Yfirlýsing frá City með stórsigri Onana með skelfileg mistök þegar United tapaði enn og aftur fyrir Brighton Cecilía hélt enn einu sinni hreinu og Inter vann Draumaendurkoma hjá Moyes á Goodison Park Misstu niður forystu þrátt fyrir að vera manni fleiri Fyrrverandi landsliðsmaður Englands mætir KSI í boxbardaga Segir Liverpool besta lið heims Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Sex í röð hjá Napólí Juventus lagði AC Milan Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Núnez með tvö mörk í uppbótartíma Jónatan Ingi tryggði Val sigur á Fram Kluivert með þrennu í fyrsta leik dagsins Elísabet sögð vera að taka við belgíska landsliðinu Sjá meira