Olíuverðmætin á norska landgrunninu metin á 20.000 milljarða 31. maí 2013 09:31
Skoska greiningarfyrirtækið Wood Mackenzie hefur reiknað það út að verðmæti olíunnar sem fundist hefur á norska landgrunninu undanfarin áratug nemi um 1.000 milljörðum norskra kr. eða ríflega 20.000 milljörðum kr. Fjallað er um málið á vefsíðunni e24.no. Þar segir að á þessu tímabili hafi ein risavaxin olíulind fundist á landgrunninu og tíu lindir sem teljast stórar á alþjóðlegan mælikvarða. Malcolm Dickson greinandi hjá Wood Mackenzie er Barenthafið talið áttunda mest spennandi olíuleitarsvæði í heiminum. Stöðugt stjórnmálalíf og sterkir innviðir í Noregi gera það að verkum að olíufélög vilja fjárfesta í olíuleit- og vinnslu á norska landgrunninu. Dickson segir síðan að nokkrir hnökrar séu enn til staðar. Meðal annars hefur fjárfestingarkostnaðurinn við olíuvinnsluna aukist um 12% á ári síðasta áratuginn og það hafa orðið töluverðar tafir á að verkefnum sé hleypt af stokkunum. Að jafnaði seinkar verkefnum um 100 daga frá áætlunum. Útreikningar Wood Mackenzie sýna að á norska landgrunninu í heild sé parkostnaðurinn við olíuvinnsluna tæplega 71 dollari á tunnuna. Það er þetta er verðið sem gerir það að verkum að viðkomandi olíufélag kemur út á sléttu við olíuvinnsluna.
Mest lesið Húsið sem keypt var á þrjár milljónir til sölu á 83 milljónir Viðskipti innlent Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Viðskipti erlent Spá hressilegri vaxtalækkun Viðskipti innlent Falskir afslættir og þrýstingur við sölu á Temu Neytendur Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Viðskipti erlent Lentu vélum easyJet örugglega á Akureyri þrátt fyrir hvassviðri Viðskipti innlent Þrjú ráðin til Tryggja Viðskipti innlent Arna innkallar kaffiskyr með vanillubragði Viðskipti innlent Bein útsending: Kosningafundur Viðskiptaráðs - Horfum til hagsældar Viðskipti innlent Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Fleiri fréttir Mega ekki lengur skreyta sig með konunglegum fjöðrum Fá ekki að skrá svívirðingar um Rússa sem vörumerki Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira